fimmtudagur, desember 14, 2006

Vegna kaffisölu

Það var að berast tilkynning frá Þorbjörgu út af kaffisölunni:

"Kaffið verður afhent á æfingu í dag fimmtudag, milli 17:00 og 18:00. Foreldrar þurfa að leggja út fyrir kaffinu sem þeirra stelpur seldu til þess að hægt verði að afhenda kaffið. Þeir sem ekki koma á æfingu í dag, eða verða ekki með peninga verða að hafa samband við Þorbjörgu (mömmu Unu) í síma 639 0496 og nálgast kaffið hjá henni, helst ekki seinna en föst./ laugardaginn. Vinsamlegast bregðist fljótt við, því það þarf að gera alla söluna upp við Te og kaffi strax eftir helgi."

miðvikudagur, desember 13, 2006

Jólafrí á næstunni

Föstudaginn 15.desember verður síðastu æfingarnar hjá yngri flokkum Knattspyrnudeildar Hauka. Æfingar hefjast aftur mánudaginn 15. janúar.

Fimmtudaginn 21. desember ljúkum við hausttímabilinu formlega með Jólaballi á Ásvöllum frá 16-18. Margs konar skemmtun í boði: jólasveinar, jólabingó, kaffi og meðlæti, keppnisbúningar seldir á hlægilegu verði ofl.

Allir eru velkomnir á ballið!