mánudagur, júní 28, 2010

Æfingar og fleira !

Takk fyrir frábæra helgi stelpunar mínar og foreldrar ! Þið voruð alveg frábærar og ég er stolt af því að "eiga" ykkur allar :) Foreldrar takk fyrir hjálpina og stuðninginn, þúsund þakkir til Jóa og Þóris - þið voruð/eruð frábærir !

Æfingarnar í júlí ! Þið eigið að mæta kl. 12 en ég mæti kl. 12:15 og þá eigið þið að vera tilbúnar, helst búnar að hlaupa um og hita aðeins upp. Æfingin er til kl. 13:15 !

Símamótið 15.-18. júlí ! Þið sem ætlið á það endilega að leggja inn á mig mótsgjaldið sem er 5.500, - kr. 1101-26-5458 kt. 110479-3529 fyrir 10. júlí !

föstudagur, júní 25, 2010

Gistum í Fjölbrautarskólanum !!!

Sjáumst í dag/kvöld !!!

miðvikudagur, júní 23, 2010

Búið að taka frá pláss á neðra tjaldstæðinu !

Amma og afi Alexöndru voru send af stað á Krókinn til að taka frá pláss fyrir Haukana :) þau eru á húsbíl "Bláskjár" og eru búin að afmarka svæði með bandi og pokum sem hanga á bandinu ! Takk fyrir þetta amma og afi :* Fyrsta nóttin kostar 1000,- á haus, önnur kostar 500,- á haus og þriðja er frí !

Það er búið að leggja inn á mig fyrir þær sem áttu pening inná reikn. sínum ..... set þetta inn í kvöld og þið sem eigið eftir að borga, endilega drífa í því :)

sunnudagur, júní 20, 2010

Krókurinn !

Mæting á Krókinn á föstudaginn milli kl. 19-24 í síðasta lagi ! Þeir sem ætla að mæta fyrr þá er það bara gott mál :) Mótsgjaldið þarf að leggja inná mig, helst á miðvikudag en í síðasta lagi fimmtudag ! Svo ég hafi tíma til að reka á eftir þeim sem eiga eftir að greiða ;)
1101-26-5458 kt. 110479-3529 7.800kr. en það er gjaldið + staðf.gj. setja nafn stelpunnar sem skýringu !
Þeir sem ætla að vera í tjaldi þá er neðra tjaldstæðið, við íþróttasvæðið ALGJÖRLEGA MÁLIÐ og þeir sem verða fyrstir á staðinn, endilega að afmarka stórt svæði fyrir Haukafólkið :) Við hittumst svo um kvöldið til að fara yfir það helsta .....
Ef það er e-r sem býður sig fram í að gista með okkur stelpunum þá er það frábært, annars skiptum við verkefnum á milli foreldranna sem verða á svæðinu.
Hvað skal taka með :
Dýna, svefnpoki, koddi og góða skapið
Fótboltaföt - keppnisgalli, sokkar, legghlífar, utanyfirgalli, takkaskór, brúsi og brosið
Handklæði, sundföt, shampoo, hárnæring, hárbursti, teygjur, hárband og keppnisskapið
Tannbursti, tannkrem, tannþráður og barátta
Auka föt - hlý föt, regnföt, pokar í skó og leikgleði
*NESTI* á milli leikja (djús, brauð, ávextir), kvöldsnarl(djús, kókómjólk, brauð, kex)
... má taka gos(1/2l) + 500kr. vasapening fyrir laugardagskvöldið og það skal tekið skýrt fram að þó svo að foreldrar séu með stelpunum þá gengur sama yfir allar og þær þurfa að velja sér e-ð fyrir 500kr. og ekki krónu meira :)
Þetta er svona það helsta .... ég vona að ég sé ekki að gleyma neinu. Annars hlakka ég bara til að eiga góða keppnishelgi með ykkur, vonandi í brakandi blíðu :) !!!

ps. æfing mán. þri. og mið. EKKI FIM. og svo sjáumst við hress á fös.

föstudagur, júní 18, 2010

Krókurinn .... styttist í þetta :D

Kostnaður, hvað á að taka með sér og fleira, set ég inn um helgina !
Þið sem ætlið að gista á tjaldsvæðinu endilega kommentið hér og þeir sem ætla að leggja tímalega af stað .... endilega reyna að taka frá svæði fyrir "alla hina" því að skemmtilegast væri að allar Haukafjölskyldur yrðu á sama stað :) !!!
Það vantar 2 fararstjóra og ef þeir vilja gista með stelpunum þá er það velkomið og frír matur innifalinn :) ... ef ekki þá þurfum við að skipta þessum hlutverkum á milli foreldra eins og t.d fylgja stelpunum í og úr mat, út á völl o.s.frv. þar sem ég verð út og suður um alla velli :) :)

Ef það eru e-r spurningar eða ef e-r er orðinn stressaður yfir hversu stutt er í mótið og nánast engar upplýsingar komnar þá endilega hafið samband við mig ! ..... þetta er samt ekkert til að stressa sig yfir :)

kveðja
Ragga
s. 691 4070

sunnudagur, júní 13, 2010

Landsbankamótið Sauðárkróki 25.-27. júní !

Svava, Alexandra, Alexandra Líf, Katrín, Rebekka, Thelma, Sigrún, Þórdís, Rakel, Bryndis, Birgitta, Bríet, Gyða, Yrsa, Hekla, Lilja, Ólavía, Sæunn, Jana, Agnes Tinna og Ólafía Björt !
Er ég nokkuð að gleyma einhverri ???

Mæting á mótsstað/í skólann sem við gistum (læt ykkur vita hvaða skóli það verður) á föstudeginum milli kl. 19 og 24 !
Byrjum að spila á laugardagsmorgun - læt inn nánari upplýsinga í vikunni annars er hægt að fara inná tindastoll.is og sjá allar upplýsingar um mótið !

miðvikudagur, júní 09, 2010

Hnátumót KSÍ á Ásvöllum á morgun fimmtudag !!!

A-lið : Svava, Þórdís, Alexandra, Katrín Hanna, Sigrún, Alexandra Líf og Elín.
Mæting kl. 12:15 ! Sæunn á að mæta sem varamaður með a-liði !!!

B-lið : Sæunn, Ólavía, Rakel, Lilja, Bryndís, Elísa, Gyða og Yrsa.
Mæting kl. 12:50 !

C-lið : Ásthildur, Hekla, Birgitta, Bríet, Silja Jenný, Edda, Helga Rún og Ólafía Björt.
Mæting kl. 15:45 !

Spilum við Val, ÍBV og KR !!!

Sjáumst sprækar á morgun

ÁFRAM HAUKAR

þriðjudagur, júní 01, 2010

Mótin í sumar og æfingar !

Búið að loka fyrir skráningu í mótin !
Sauðárkrókur : Svava, Alexandra, Alexandra Líf, Katrín, Rebekka, Thelma, Sigrún, Þórdís, Rakel, Bryndis, Birgitta, Bríet, Gyða, Yrsa, Hekla, Lilja, Ólavía, Sæunn, Jana og Agnes Tinna.
Símamótið : Svava, Silja, Edda, Alexandra, Alexandra Líf, Katrín, Rebekka, Thelma, Þórdís, Rakel, Bryndís, Sigrún, Lilja, Elín, Helga Rún, Birgitta, Ásthildur, Bríet, Elísa, Salka, Jóhanna, Agnes Tinna og Hekla.

Æfing á fimmtudaginn og svo á mánudaginn ..... en þá byrja nýju tímarnir okkar :)

Verðum á mán. þri. mið. og fim. kl. 12-13
19. júlí - 4. ágúst þá er sumarfrí !

MUNA AÐ SKRÁ SIG Í PÓSTINN HÉR FYRIR NEÐAN - ÍSLANDSMÓTIÐ !!!!!