föstudagur, desember 07, 2007

Jólafrí og jólaball framundan

Síðusta æfingin okkar fyrir jólafrí verður fimmtudaginn 13. desember. Jólafríið hefst svo formlega með glæsilegu jólaballi á Ásvöllum, sunnudaginn 16. desember frá kl. 17-19 í Veislusalnum. Það kostar 500 krónur á Jólaballið og innifalið í því er bingóspjald og nammipoki á leiðinni heim.

Á jólaballinu verður eitthvað í boði fyrir alla barna- og unglingaflokkana: Jólabingó, Jólasveinar, tónlistaratriði með Ceres4 (Hlyni þjálfara 4. 5. & 6.flokks karla, sem sló í gegn í Eurovisionforkeppninni með jólaslagarann Hey, Hey, Hey, we say Ho, Ho, Ho). Þá verður heljarinnar Jólabasar þar sem alls kyns varningur verður til sölu á hlægilegu verði: gamlir búningar, íþróttagallar, þvílíkt flottir markmannsbúningar, bækur, diskar, alls kyns dót! Komið og gerið reyfararkaup (á jólagjöfum kannski?). Þá verða ýmsar veitingar í boði á góðu verði.
Það eru allir, fótboltafólk sem aðrir, Haukafólk sem "ekki-Haukafólk" velkomnir á Jólaballið.

Mánudaginn 14. janúar verður síðan fyrsta æfing eftir jólafrí uppí Risa kl 17:00.


Ef það eru einhverjar spurningar endilega hafið samband við mig í síma 698-8329.

Jólakveðja

Svava

……………………

þriðjudagur, desember 04, 2007

Æfingaleikurinn

Æfingaleikurinn á móti Stjörnunni um daginn gekk mjög vel. Eldri árið var að spila vel en voru óheppnar fyrir framan markið og náðu ekki að klára færin, búið að vera endalaust af skotæfingum síðan til að redda því fyrir næsta leik :) Yngri árið stóð sig einnig mjög vel og komu mörkin á færibandi hjá þeim.
Virkilega gaman að sjá baráttuna og spilið hjá stelpunum. Margar að spila sinn fyrsta fótboltaleik og stóðu sig einsog hetjur.
Ég var rosalega stolt af þeim öllum!!

Einnig eiga allir þeir foreldrar sem komu hrós skilið, frábært hvað það komu margir.

Kv. Svava