fimmtudagur, janúar 31, 2008

Vinkonuæfing og aðstoðarþjálfarar

Í dag verður vinkonu-æfing hjá okkur. Allar stelpur geta komið með eina vinkonu og æfingin verður eitthvað öðruvísi en venjulega. Smá fótbolti og sprell og vonandi skila einhverjar af "vinkonunum" sér aftur á æfingu, það yrði frábært. Hálf seint að blogga um þetta núna en ákvað að setja þetta inn núna með, þær eru allar búnar að fá miða um þetta á síðustu æfingum.

Við erum komnar með fasta aðstoðarþjálfara. Það hafa verið að koma mismunandi aðstoðarþjálfarar núna fyrir jól, en mér fannst þess ekki alltaf þurfa þar sem mætingin var svo slök og taldi ég mig ráða vel við þetta. En núna eru stelpurnar farnar að vera duglegri að mæta og vonandi verður það áfram þannig. Þessvegna er það komið fast að hann Nonni verður alltaf með okkur á mánudögum og Þórir verður alltaf með okkur á þriðjudögum og fimmtudögum. Báðir eru þetta strákar sem spila með Haukum og eru 18-19 ára. Mjög ljúfir og góðir báðir og ná vel til stelpnanna. Læt símanúmerin hjá þeim fylgja með ef einhverjir foreldrar þurfa að ná á þá.
Nonni : 663-3833 og Þórir : 6954493


KV. Svava þjálfari (698-8329)

miðvikudagur, janúar 16, 2008

Æfingamót

Breiðablik hefur boðið okkur að koma á æfingamót næsta sunnudag inní Fífu í Kópavogi. Mótið er frá 9-12 og eiga stelpurnar að mæta 8:30. Þetta er einungis mót svo að stelpurnar fái marga leiki til að spila saman og hafa gaman, engin verðlaun né þess háttar. Bið allar um að koma vel klæddar og með nesti. Búningar verða á staðnum. Ég er því miður að fara erlendis akkurat þessa helgi en hann Kristján Ómar ætlar að fara með stelpurnar svo þær missi ekki af þessu. Kristján Ómar er bróðir minn og þjálfaði 6.flokk kvenna í fyrra þannig að hann þekkir þær.

Hvet alla foreldra til að koma og hvetja stelpurnar.

Síminn hjá Kristjáni Ómari er 6955415.

KV. Svava - 6988329

sunnudagur, janúar 13, 2008

Nýtt fótboltaár

Jæja þá byrja æfingar aftur á morgun inní Risa kl 17:oo eftir langt og gott jólafrí. Vonast til að sjá sem flestar, enda búin að sakna stelpnanna ansi mikið.

Nokkur atriði sem mig langar að minna á
  • Koma vel klæddar á allar æfingar
  • Koma á réttum tíma á æfingar
  • Láta vita þegar stelpurnar komast ekki á æfingar
  • og um fram allt að vera duglegar að mæta!!!

Nú styttist í að við förum í Vogana yfir nótt og þá verða það einungis stelpurnar sem eru búnar að mæta 70 % og betur sem fá að fara, þannig að um að gera vera dulegar að mæta því enginn vill missa af því.

Er ekki komin með nákvæma dagsetningu en það fer að koma, en planið er að fara um helgi í íþróttarhúsið í Vogunum og gista þar eina nótt saman. Yngri flokkar Hauka hafa verið að fara í svona ferðir og vakið mikla lukku. Höfum aðgang að sundlauginni, íþróttasalnum til að leika okkur í fótbolta, fara í tarsanleik og raun allt sem við viljum gera. Síðan verður pöntuð pítsa og horft á einhverja skemmtilega bíómynd saman. Skemmtileg ferð til að þjappa hópnum saman og ná að kynnast allar betur.

Endilega hafið samband ef eitthvað er!!

Kv. Svava þjálfari (6988329)