þriðjudagur, apríl 28, 2009

Æfingaleikur í Risanum á morgun, miðvikudag !

Hæ hæ !

Þær sem eiga að mæta upp í Risa á morgun eru :
Agnes, Alma, Blerína, Bryndís, Gyða, Katrín, Lejla,
Lilja, Magnea, Rakel, Sigrún, Sóley og Yrsa.

Kannski mæta 4 úr 7. fl. með okkur.

Mæting kl. 15:45 stundvíslega , látið mig vita tímanlega
ef þið komist ekki.

kveðja
Ragga (691 4070) og Hildur

sunnudagur, apríl 26, 2009

Æfingaleikur í Risanum á morgun, mánudag !

Sælar stelpur og takk fyrir skemmtilega ferð í Vogana - þið eruð frábærar !!

Þær sem eiga að mæta í Risann kl. 16:45 á morgun eru :
Alexandra, Andrea, Áslaug, Dagrún, Elín, Elma, Eydís,
Gugga, Katla, Svava, Sunna, Thelma, Vera og Þórdís.

Þið verðið að láta mig vita tímanlega ef þið komist ekki !!!
Sjáumst sprækar á morgun

Kveðja
Ragga (691-4070) og Hildur

þriðjudagur, apríl 21, 2009

Vogaferðin !

Jæja, þá er komið að Vogaferðinni ..... :)
Við ætlum að leggja af stað frá Ásvöllum kl. 13:00 á laugardaginn, ágætt að hittast 12:50 í andyrinu á íþróttahúsinu. Ferðin kostar 2.000kr.
Það verður skemmtileg dagskrá langt fram á kvöld og við ætlum að hafa rosalega gaman !!! ;) Verið klæddar eftir veðri - við verðum aðeins úti líka.
Það sem þarf að taka með :
Nesti fyrir laugardaginn (ekki kvöldmat) og morgunmat á sunnudeginum
Laugardagsnammi max kr. 300,- + gos (þessu má að sjálfsögðu sleppa)
Dýnu, svefnpoka og kodda (eða lak og sæng)
Náttföt
Sundföt + handklæði
Innanhúsíþróttaföt
Tannbursti, tannkrem, hárbursti...
Stelpur svo megið þið endilega koma með skemmtiatriði og væri gaman ef þið væruð búnar að æfa ykkur og undirbúa e-ð skemmtilegt !!

Endilega skráið ykkur hér á heimasíðuna svo að við getum haft samband við þær stelpur sem ekki láta vita hvort þær komi eða ekki svo þessi skemmtilega ferð fari ekki framhjá neinni stelpu. Endilega látið líka vita ef þið getið skutlað eða sótt.

Kveðja
Ragga og Hildur

sunnudagur, apríl 19, 2009

Æfingaleikur og Sumardagurinn Fyrsti

Hæ Hæ !
Æfingaleikur á morgun mánudag við Stjörnuna í Risanaum kl. 17-18 !!! Mæting Stundvíslega kl. 16:45.
Ef þið komist ekki, þá verðið þið að láta mig vita OK ;)

Það er ekki æfing á Sumardaginn Fyrsta (fimmtudaginn 23. apríl) !

Sjáumst sprækar á morgun
kveðja
Ragga (691 4070) og Hildur

ÁFRAM HAUKAR

laugardagur, apríl 18, 2009

Vogaferðin núna 25.apríl!

Jæja nú fer að styttast í skemmtiferðina okkar í Vogana helgina 25.-26.apríl. Við munum hittast á Ásvöllum og safna okkur saman í bíla. Leggjum af stað kl.13.00 og komum til baka á sunnudeginum kl. 13.00 en þá verða foreldrar að sækja sína stelpu eða sjá um að koma henni heim með einhverjum öðrum, en láta okkur vita af því. Þeir sem vilja keyra á laugardeginum vinsamlegast bjóða sig fram með því að gera athugasemd hér á síðunni. Ferðin verður nánar auglýst síðar og þá kemur m.a. listi yfir það sem við tökum með okkur og jafnvel dagskráin líka.

Bestu kveðjur, Hildur og Ragga.

föstudagur, apríl 17, 2009

Kökubasarinn gekk frábærlega !!!

Stelpur og foreldrar sem tókuð þátt í kökubasarnum í dag !
Þetta heppnaðist rosalega vel hjá ykkur - stelpurnar alveg til fyrirmyndar og kökurnar rosalega flottar, enda seldust þær allar !!! ;)
Gaman þegar svona vel tekst til og allir glaðir og ánægðir

Bara frábært
kveðja
Ragga

þriðjudagur, apríl 14, 2009

Kæru Haukaforeldrar 6.flokks stelpna.

Á föstudaginn 17 apríl ætlum við að halda kökubasarinn í Firði

Þeir foreldrar sem voru búnar að bjóða sig fram eru hér á listanum og hver stelpa kemur með 2 kökur (merkja sína köku – ef svo ólíklega vill að við seljum ekki allt). Muna að pakka þeim inn í sellófan og skrifa innihaldslýsingu og verð 2.500 kr stk.

Mikilvægt er að koma með kökurnar klukkan 13 þegar basarinn byrjar og að stelpurnar mæti í Haukabúning þær selja betur þannig.

Kl 13:00- 13.30. Lizy mamma Katrínar

Kl 13:30- 14.00. Soffía mamma Thelmu

Kl 14:00- 14:30. Arndís mamma Ölmu

Kl 14:30- 15:00 Guðbjörg mamma Gyðu Maríu.

Kl 15:00 -15:30- Ester mamma Andreu Önnu

Kl 15:30- 16;00 Margrét og Þórir foreldrar Yrsu Rósar

Kl 16:00- 16:30, Helga - mamma Rakelar óskar

Kl 16:30-17:00 Þórunn Erla mamma Dagrúnar Birtu

Kl : 17:00-17.30 Inga mamma Eydísar

Kl 17:30- vantar

Kveðja Foreldrastjórn (Þórunn, Kristín, Lizý og Símon)

Allt á fullt eftir gott Páskafrí !

Hæ Haukaskvísur !
Vonandi höfðuð þið það rosalega gott í Páskafríinu :)
Æfing á morgun, miðvikudag kl. 17-18 á Ásvöllum ÚTI !!!
Sjáumst hressar og klæddar eftir veðri

kveðja
Ragga og Hildur

mánudagur, apríl 06, 2009

Haukar - Fh á fimmtudaginn 9. apríl kl. 14

Haukastelpur !!
Ég er með miða fyrir ykkur og fjölskyldur ykkar á leik Hauka og Fh
fimmtudaginn 9. apríl kl. 14:00 í Kórnum Kópavogi.

Haukar - Fh , fimmtudaginn 9. apríl kl. 14:00

Endilega nálgist miða hjá mér og mætið með fjölskylduna í rauðu á
þennan leik.

Sjáumst á leiknum
ÁFRAM HAUKAR

kveðja
Ragga