Fimmtudaginn 26. apríl verður haldin kynning á Íþróttaskóla Hauka sem verður starfræktur í fyrsta skipti núna í sumar. Skólinn er samstarfsverkefni boltadeildanna innan félagsins og verður í boði fyrir krakka frá 5-12 ára aldurs.
Það eru allir velkomnir til að koma og kynna sér þessa spennandi nýjung hjá félaginu. Kynningin fer fram á 2.hæðinni í Íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum og hefst kl. 20:00.
Það er rétt að taka það fram að ég, Kristján Ómar, er titlaður skólastjóri þessa skóla og mun leggja mikla áherslu á það að sem flestar stelpur úr flokknum nýti sér þetta frábæra tilboð fyrir krakka á þessum aldri.
föstudagur, apríl 20, 2007
fimmtudagur, apríl 12, 2007
Framundan hjá 6.fl.kvenna
- Sunnudagurinn 15. apríl – Foreldrafótbolti í Víðistaðaskóla kl. 13:00-14:00
Foreldrar mæta með stelpunum og taka þátt í skemmtilegum leikjum og fótbolta. Alger skyldumæting hjá öllum! Í lok æfingarinnar gefst þeim sem ekki gátu á fimmtudagsæfingunni að máta æfingafatnaðinn og panta.
- Mánudagurinn 16. apríl – Venjulega æfing í Risanum kl. 17:00
- Fimmtudagurinn 19. apríl – Æfingaleikur í æfingatímanum kl.17 á Ásvöllum
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)