Hæ hæ Haukaskvísur !!
Þið stóðuð ykkur rosalega vel í gær á móti Val og við erum ótrúlega stoltar af ykkur "stelpunum okkar" !!! :)
Æfing á morgun, miðvikudag og svo er síðasta æfing fyrir páskafrí á föstudaginn en þá verða mætingaverðlaunin veitt og við gerum e-ð skemmtilegt - endilega mætið í e-u gulu... !!
Kveðja
Ragga og Hildur
þriðjudagur, mars 31, 2009
laugardagur, mars 28, 2009
Æfingaleikur við Val !
Sælar skvísur !
Æfingaleikur við Val á mánudaginn í Risanum kl. 17-18, mæting kl. 16:50 vel klæddar :)
Ég vill fá staðfestingu á hverjar verða með, hér á síðunni eða með sms-i !!
Vona að þið komist allar :)
Sjáumst hressar
Áfram Haukar
kveðja

miðvikudagur, mars 25, 2009
Lakkrís og kökubasar !!!!!!
Kæru foreldrar !
Við höfum fengið borð í Firðinum 17.april ´09 eftir hádegi fyrir kökubasar.
Nú þurfum við að fá duglega pabba og mömmur til að baka og einnig til að vera á staðnum, t.d frá 13-14 , 14-15, þangað til allar kökur eru búnar. Auðvitað sjá stelpurnar um þetta en við þurfum samt að hafa einhverja með þeim. Ef að viðbrögðin verða dræm við þessu þá afpöntum við borðið. Hagnaðurinn deilist niður á þá sem að koma með köku.
Vinsamlegast skráið ykkur hér fyrir neðan þ.e.a.s hvort að þið komið með köku og á hvaða tíma þið getið verið í sölu.
Annað mál ….. á föstudaginn 27.03.09 verður síðasti séns að skrá magn af lakkrís , sjá neðar .
Nóg í bili ……….. kveðja foreldrastjórn

mánudagur, mars 16, 2009
Æfingaleikur við Fh í dag !!!
Stelpur þið voruð frábærar í dag - stóðuð ykkur ALLAR rosalega vel !!!
Við erum stoltar af ykkur :) ........ áfram Haukar !
Sjáumst hressar á æfingu á miðvikudaginn.
Kveðja Ragga & Hildur

laugardagur, mars 14, 2009
Æfingaleikur við FH mánudaginn 16.mars!
Minnum á æfingaleikinn við FH á æfingatímanum okkar í Risanum kl.17-18. Munum að vera vel klæddar og með fylltan vatnsbrúsa.
Ragga og Hildur.
Ragga og Hildur.
Mót sumarsins, ath. breytingu á dagsetningu á Króksmótinu!
Skemmtiferð, 25.-26.apríl, Vogarnir.
Faxaflóamótið, mars/apríl, Ásvellir/???
Þróttaramótið, 7.júní, Laugardal, Rvk.
Króksmótið, 26.-28.júní, Sauðárkrókur.
Símamótið, 16.-19.júlí, Kópavogur.
Breytingin sem átti sér stað var að dagsetningin á Króksmótinu er 26.-28.júní í stað 8.-9.ágúst og fellur því Skallagrímsmótið af listanum okkar.

Vogaferð helgina 25.-26.apríl!
Jæja nú förum við í skemmtiferð í Vogana þ.e.a.s. helgina 25.-26.apríl. Við munum hittast á Ásvöllum og safna okkur saman í bíla. Leggjum af stað kl.13.00 og komum til baka á sunnudeginum kl. 13.00 en þá verða foreldrar að sækja sína stelpu eða sjá um að koma henni heim með einhverjum öðrum, en láta okkur vita af því. Þeir sem vilja keyra á laugardeginum vinsamlegast bjóða sig fram með því að gera athugasemd hér á síðunni. Ferðin verður nánar auglýst síðar og þá kemur m.a. listi yfir það sem við tökum með okkur og jafnvel dagskráin líka.
Bestu kveðjur, Ragga og Hildur.
Bestu kveðjur, Ragga og Hildur.
LAKKRÍS !!!!
Kæru foreldrar
Ákveðið hefur verið að stelpurnar selji lakkrís. Þið þurfið hins vegar að áætla hvað þið / þær ætli að selja mikið og skrá það hér fyrir neðan.
Afgreiðsla á þessu magni tekur einhvern tíma þannig að við skulum gera ráð fyrir því að við seljum þetta eftir páska (reynum ekki að keppa við páskaeggin).
Við kaupum pokann á 500 kr. og ætlum að selja hann á 1000 kr.
Kær kveðja, foreldrastjórnin.
fimmtudagur, mars 05, 2009
Foreldrafundur mánudaginn 9.mars kl.20.00!
Foreldrafundur 6. flokks kvenna mánudaginn 09. mars kl. 20:00 á Ásvöllum
Barna og unglingaráð Hauka og Íþróttastjóri Hauka boða til fundar til að kynna breytingar á þjálfaramálum hjá flokknum ásamt öðrum verkefnum sem eru í vinnslu hjá barna- og unglingaráði.
Dagskrá
· Kynning á breytingum á þjálfurum hjá flokknum
· Kynning á stjórn barna- og unglingaráðs
· Kynning „Leiðbeiningaskjal fyrir foreldraráð“
· Verkefnið „Frá byrjendum að meisturum“
· Æfinga og keppnisfatnaður

sunnudagur, mars 01, 2009
Kæru foreldrar
Knattspyrnudeild Hauka er að gera breytingar á uppbyggingu þjálfunar yngri flokka stelpna hjá félaginu.
Þórarinn Engilbertsson (Tóti) verður yfirþjálfari stelpnaflokka, frá 3. flokki niður í 8. flokk. Hann mun sjá um samræmingu þjálfunar og gæta þess að þjálfun sé í samræmi við íþróttanámskrá. Samhliða mun hann einnig sjá um markaðssetningu yngri flokka stelpna. Barna og unglingaráð er einnig með í vinnslu að ná betri tengingu yngri flokka við meistaraflokka félagsins og Tóti mun vinna í því máli með barna og unglingaráði.
Samhliða þessu verða breytingar á þjálfunarmálum 6. flokks kvenna, þannig að Þórarinn hættir sem þjálfari 6. flokks kvenna, og í stað hans mun Ragnheiður Berg verða þjálfari ásamt Hildi Loftsdóttur sem hefur verið þjálfari með Þórarni. Ragnheiður og Hildur munu einnig þjálfa 7. flokk kvenna. Þórarinn mun áfram þjálfa 3, 4. og 5. flokk kvenna.
Þórarinn mun hins vegar hafa yfirsýn yfir starfið í öllum kvennaflokkunum. Einnig er gert ráð fyrir þeim möguleika að valdar stelpur eigi kost á að æfa með 5. flokki kvenna.
Hildi Loftsdóttir er óþarfi að kynna en eins og þið vitið hefur Hildur þjálfað hjá Haukum í nokkur ár við góðan orðstýr. Þessar stelpur voru allar hjá Hildi þannig að hún þekkir þær og þær hana. Ragga hefur verið að aðstoða Hildi með 7. flokkinn einnig þjálfaði hún hjá félaginu fyrir tveimur árum.
f.h. knattspyrnudeildar
Guðbjörg Norðfjörð Íþróttastjóri Hauka

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)