fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Engin æfing á mánudaginn

Mánudaginn 19. febrúar verður engin æfing í Risanum. Í staðinn verður stuttur fundur uppi á Ásvöllum á sama tíma, þeas. kl. 17:00 í Íþróttahúsinu.

Mál á dagskrá eru:

1. Mót sumarsins - dagsetningar móta sem farið verður á í sumar gefnar út.
2. Agamál í flokknum - Tími kominn á samstillt átak allra sem að flokknum koma.

Sérstaklega vegna seinna málsins sem er á dagskrá þá vill ég að þið mætið með stelpunum ykkar á fundinn. Ég ætla þeim ekki að vera þátttakendur á fundinum heldur fylgjast með umræðunni sem þar mun fara fram. Fundinum ætti að vera lokið í síðasta lagi 17:30.

Algjör skyldumæting!!

sunnudagur, febrúar 11, 2007

Æfingaleikur við FH 22. febrúar kl. 17 í Risanum


Fimmtudaginn 22. febrúar kíkjum við í heimsókn til FH og spilum æfingaleik í Risanum kl. 17:00-18:00. Það er einmitt á sama tíma og æfingar eru hjá okkur, svo eina sem breytist er að við verðum uppi í Risa. Ég dreifi miðum til stelpnanna þegar nær dregur. Ég kalla eftir góðri mætingu og vona að sem flestir foreldrar komi og fylgist með. FH eru með 25-30 stelpur í 6.flokki og því ljóst að, þar sem við eru eitthvað aðeins færri en það, að allar fá að spila heilmikið í þessum leikjum.

Áfram Haukar!!!

miðvikudagur, febrúar 07, 2007

Myndir frá VogaÓlympíuleikunum





































Loksins gaf ég mér tíma til að henda hingað inn þessum myndum sem Íris, mamma Elísu, tók. Frábærar myndir sem ná vel andanum sem ríkti þennan sólarhring sem við vorum öll saman. Brjálað stuð í Tarzan-leiknum, trampólínhástökkinu sem heppnaðist frábærlega, handbolti, körfubolti, 100 m. spretthlaup og að sjálfsögðu fótbolti!
Myndirnar koma eitthvað smá klessulega fram, en það það skiptir engu svo sem. Takk fyrir myndirnar Íris.