sunnudagur, september 20, 2009

Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar, föstudaginn 25.sept. !!

Kæru foreldrar !
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Hauka verður haldin föstudaginn 25. september. Endilega kíkið á heimasíðu Hauka ...... allar upplýsingar þar !

Ég veit að það eru e-r foreldrar sem ætla að fara og það væri gaman ef þið munduð láta vita, hér á síðunni, þið sem ætlið að fara !!!

Kveðja
Ragga

þriðjudagur, september 15, 2009

Uppskeruhátíð sunnudaginn 20. september !!!

Sunnudaginn 20. september kl. 14 verður Uppskeruhátíð yngri flokka Hauka haldin á Ásvöllum. Öll fjölskyldan velkomin. Allir í 8.fl. - 4.fl. eiga að koma með köku/aðrar veitingar fyrir veisluna sem verður eftir verðlaunaafhendinguna !!! Skila þarf kökum/veitingum kl. 13:45 inn í íþróttasal.

kveðja
Ragga

þriðjudagur, september 08, 2009

Æfingar !

Minni á breytta æfingatíma frá og með deginum í dag !!!

þriðjudagar kl. 16:30-17:30 og fimmtudagar kl. 15:30-16:30 Ásvellir
(frá 1. okt. kl. 11-12 í Risanum)

Skipt verður um flokka 15. september og þá er
5. flokkurinn á æfingum :

þriðjudagar kl. 17:30-18:30 og fimmtudagar kl. 16:30-17:30 Ásvellir
(frá 1. okt. kl. 12-13 í Risanum)

kveðja
Ragga

fimmtudagur, september 03, 2009

Partý !!

Þið sem ætlið að koma í partýið á morgun.... verðið að skrá ykkur í síðasta lagi á hádegi á morgun föstudag :) !!!! Sjáumst hressar kl. 19 annað kvöld í náttfötum. Muna að taka með e-ð að drekka og helst með skemmtiatriði með ykkur - það væri voða gaman !!

kveðja
Ragga
Fléttuvellir 11

miðvikudagur, september 02, 2009

Æfingatímar í vetur !!!

Frábæru stelpur í 6.flokki !
Þá eru komnir æfingatímar fyrir veturinn :) og við byrjum í næstu viku ......

Þriðjudagar kl. 16:30-17:30 og fimmtudagar kl. 15:30-16:30 (báðar æfingar úti á Ásvöllum)
1. okt. bætist svo við æfing í Risanum kl. 11-12 á sunnudögum

þið stelpur sem eruð að fara í 5.flokk æfið á þessum tímum til 15. sept. þá breytast ykkar tímar :

þriðjudagar kl. 17:30-18:30 og fimmtudagar kl. 16:30-17:30 (báðar æf. úti á Ásvöllum)
1. okt. bætist svo við æfing í Risanum kl. 12-13 á sunnudögum

Minni svo á að þið þurfið að SKRÁ YKKUR Í PARTÝIÐ !!!!

kveðja
Ragga

þriðjudagur, september 01, 2009

Náttfatapartý !!!

Jæja skvísur !!
Ég ætla að bjóða ykkur í náttfatapartý á föstdaginn kl. 19-22. Endilega látið mig vita hvort þið komist eða ekki !!
Það sem þið megið gera er að undirbúa skemmtiatriði til að sýna......... og taka með ykkur gos eða e-ð að drekka, ég sé um rest :)
Sjáumst á æfingu á fimmtudaginn og svo í partýi á föstudaginn!

kveðja
Ragga
Fléttuvellir 11