mánudagur, október 04, 2010

Haustmót ÍA 2010

Okkur býðst að taka þátt á hraðmóti laugardaginn 13.nóvember og byrjar mótið kl.12.00
Það kostar 1000 krónur á keppanda og í boði er svali og pizza í lok mótsins. var að velta því fyrir mér hvort það væri áhugi fyrir hendi að taka þátt í mótinu. Ég mun senda bréf heim með stelpunum á fimmtudaginn næstkomandi og þið getið þá staðfest þáttöku sem stelpurnar koma svo með á æfingu á föstudeginum. Þá kemur í ljós hvort nógu margar stelpur koma svo við getum tekið þátt.
Kveðja Kristján Arnar
kristjan.arnar.ingason@reykjavik.is
sími 7703300

Íbúagáttin

Minni á að þann 1. október opnar á ný fyrir umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki.

Frestur til að staðfesta þátttöku vegna haustannar 2010 (sept. – des.) er til og með 15. október. Gáttin er aðeins opin einu sinni á þessu tímabili.

Með staðfestingu í gegnum Íbúagáttina samþykkir forráðamaður barns að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna þátttöku barnsins í námskeiði á vegum félagsins.

Nánari upplýsingar um íþrótta- og tómstundastyrkina eru í Íbúagáttinni, www.hafnarfjordur.is , en einnig hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar í síma 585-5500 og hjá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar í síma 555-2300.

Einnig er hægt að hringja í íþróttastjóra félagsins og fá nánari upplýsingar s: 525-8702. Minni á að ef viðkomandi staðfestir ekki á tímabilinu 1.-15. október þá kemur greiðsluseðill fyrir upphæðinni á viðkomandi fjölskyldu.