Ég hef ákveðið að hafa smá sumarfrí hjá stelpunum. Flest allir yngri flokkarnir voru búnir að hafa frí, en ég bara vissi hreinlega ekki af því fyrr en í lok síðustu viku. Það verður samt æfing núna mánudag 21 júlí og þriðjudag 22 júlí og tökum okkur svo frí í eina og hálfa viku og mætum aftur á æfingu á þriðjudaginn 5 ágúst, síðan er það Siglufjörður helgina á eftir.
Minni á foreldrafundinn sem verður 23. júlí vegna Siglufjarðarferðarinnar. Mjög mikilvægt að foreldrar þeirra stelpna sem ætla með komi á fundinn. Að gefnu tilefni verð ég því miður að segja að þær sem voru ekki búnar að skrá sig fyrir 10 júlí einsog ég var búin að auglýsa komast ekki með. Ég varð að skrá okkur og gefa upp hveru margar kæmu. Einhverjar foreldrar vissi ég ætluðu að bíða og sjá til og því miður er það bara orðið of seint...
Semsagt sumarfrí frá fótboltaæfingum 23 júlí - 4 ágúst.
mánudagur, júlí 21, 2008
fimmtudagur, júlí 17, 2008
Knattspyrnunámskeið hjá Íþróttaskólanum í boði næstu 2 vikur
Vegna eftirspurnar hefur verið ákveðið að bjóða áfram upp á knattspyrnunámskeið hjá Íþróttaskóla Hauka vikurnar 21.-25. júlí og 28. júlí- 1. ágúst. Námskeiðgjöld fyrir vikuna er 3000 kr. fyrir þá sem hafa greitt æfingagjöld, 3500 kr. fyrir aðra. Umsjónaraðilar námskeiðsins eru leikmenn meistaraflokks karla og kvenna hjá Haukum sem starfa við Íþróttaskólann. Námskeiðið er frá 9-12 á daginn. Skráning fer fram á staðnum og einnig er hægt að greiða þar eða fá upplýsingar í Vallarhúsinu um hvernig má millifæra námskeiðsgjöldin.
Allar almennar upplýsingar um Íþróttaskólann á www.haukar.is undir “Skráning á Íþróttanámskeið”.
Allar almennar upplýsingar um Íþróttaskólann á www.haukar.is undir “Skráning á Íþróttanámskeið”.
fimmtudagur, júlí 03, 2008
Skárning
Hverjar ætla að koma á Pæjumótið á Siglufirði aðra helgina í Ágúst ??
Allar þær sem ætla verða að skrá sig hér í commentakerfið eða hringja í mig í síma 698-8329.
Ég þarf að tilkynna 10 júlí hvort við komum með eitt lið eða tvö og þarf því að vera komin með á hreint fyrir það hversu margar ætla.
Kv. Svava

smá húllum hæ
Miðvikudaginn 9 júlí koma KA-stelpur í 5 og 6 flokki kvenna í heimsókn á Ásvelli. Verður haldin sameiginleg æfing, leikir spilaðir, pantaðar pítsur og eitthvað fleirra skemmtilegt. Mæting er kl 17:00 og fellur æfing um morguninn niður. Tilvalið síðan að plata mömmu og pabba til að kíkja uppá Kaplakrika og sjá meistaflokk kvenna í Haukum keppa við FH kl 20:00
Ég verð semsagt sjálf að keppa og í undirbúning fyrir leik og kem ekki í fjörið á Ásvöllum, en hann Tóti 5 flokks þjálfari ætlar að sjá um þetta allt saman með KA þjálfaranum.
Endilega allar að mæta.
KV. Svava

Foreldrafundur
Foreldrafundur vegana pæjumótsferðarinnar á Siglufjörð verður 23 júlí kl 20:00 uppá Ásvöllum.
Mjög mikilvægt að sem flestir foreldrar komi.
Mjög mikilvægt að sem flestir foreldrar komi.
miðvikudagur, júlí 02, 2008
Hnátumótið
Við spiluðum á Hnátumótinu í gær og okkur gekk nokkuð vel. Mættu 18 stelpur, ótrúlega ánægð með þessa mætingu. Auðvitað varð það til þess að allar fengu verkefni við hæfi og úrslit eftir því. ÍR vann riðilinn í keppni A-liða og við töpuðum rétt fyrir þeim í fyrsta leik 2-1 og hefðum klárlega getað unnið þann leik. ÍR er búið að vera með mjög sterkan 6 flokk lengi og þetta því frábær úrslit. töpuðum einnig rétt fyrir Aftureldingu og Grindavík og bæði þessi lið eru líka með mjög góð lið og tóku okkur í bakaríið um daginn. A-liðið endaði svo á að vinna Fram örugglega.
B-liðið endaði í 2 sæti með 3 sigra og eitt ansi naum tap 3-2 gegn Grindavík.
Hringdi einn foreldri í mig í morgun og sagði að útiæfingarnar í vetur hefðu sko klárlega skilað sínu því í síðasta leik kom víst skelfilegt veður og mótherjarnir nánast farnar að skæla en þá létu Haukastelpurnar einsog ekkert væri og rúlluðu leiknum upp...frábær :)
Ég náði því miður ekki að vera með þeim allt mótið, var sjálf að fara að keppa. En er búin að heyra að það hafi verið mikil barátta og stelpurnar hafi oft verið að spila flottan fótbolta og allar lagt sig fram. Þannig að ég er gríðarlega stolt af stelpunum.
Nú höldum við bara áfram að vera dulegar að mæta á æfingar og leggjjum okkur fram og komum enn betri í næsta mót, sem er einmitt Pæjumótið á Siglufirði :)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)