föstudagur, september 17, 2010

Uppskeruhátíð 2010

Yngri flokkar Hauka í knattspyrnu á Ásvöllum.

Sunnudaginn 26. sept. kl. 12:00.

Mömmur, pabbar, ömmur, afar og systkini eru velkomin.
Veisla verður í íþróttasalnum að lokinni verðlaunaafhendingu.
Allir krakkar í 4., 5., 6., 7. og 8. flokki koma með köku eða aðrar veitingar fyrir veisluna að lokinni verðlaunaafhendingu.
Skila kökum og veitingum kl. 11:45 í veislusal.

Kristján Arnar Ingason nýr þjálfari

Kæru foreldrar og iðkendur
Kristján Arnar Ingason hefur verið ráðin yfirþjálfari kvennaflokkanna og mun ásamt því þjálfa 5. og 6. flokk kvenna. Kristján Arnar hefur mikla reynslu af þjálfun og kennslu í gegnum árin.

Við bjóðum Kristján Arnar velkominn til starfa og væntum mikils af honum.

Hér eru æfingatímar vetrarins:

Fimmtudagar
kl. 16:00-17:00 Gervigras

Föstudagar
15:00-16:00 Gervigras

Sunnudagar
10:00-11:00 Risinn (byrjar frá og með 3. okt.)

Áfram Haukar
Guðbjörg Norðfjörð
Íþróttastjóri

laugardagur, september 11, 2010

Kæru foreldrar og iðkendur !

Nú eru hlutirnir farnir að gerast. Við erum búin að ráða yfirþjálfara og mun hann líka þjálfa 2 flokka. Við eigum þá eftir að ráða þjálfara á 2 flokka til viðbótar og það mun vonandi skýrast í byrjun næstu viku. Þar sem tímabilið hjá flestum félögum er að klárast þá verður yfirþjálfarinn ekki klár fyrr en eftir næstu helgi og í næstu viku mun verða ákveðið hver tekur hvaða flokk. Þess vegna höfum við fengið Jóhann Unnar (pabba Alexöndru) til að þjálfa 5. og 6. flokk í næstu viku. Æfingatímarnir verða þessir:

Þriðjudagur
5. flokkur kl. 16:00
6. flokkur kl. 17:00

Fimmtudagur
6. flokkur kl. 15:30-16:30

5. flokkur kl. 16:30-17:30

Í lok vikunnar verða þessar breytingar tilkynntar ásamt nýrri æfingatöflu.

Takk fyrir þolinmæðina kæru foreldrar og iðkendur.

Guðbjörg Norðfjörð
Íþróttastjóri Hauka

þriðjudagur, september 07, 2010

Kæru foreldrar og iðkendur !

Við erum enn að vinna í þjálfaramálum og leysast þau mál vonandi nú í vikunni. Ragga mun vera með ykkur út þessa viku og vil ég biðja foreldra að fylgjast vel með á blogginu varðandi æfingatíma. Á morgun, miðvikudag, mun koma út "flyer" yfir vetrarstarf Hauka og í honum verða aðrir æfingatímar tilteknir. EKKI TAKA MARK Á ÞEIM ÆFINGATÍMUM STRAX, BLOGGIÐ MUN ALLTAF VERA MEÐ RÉTTA ÆFINGATÍMA. Það er því mikilvægt að fylgjast vel með hérna á síðunni.
Um leið og við erum búin að ráða þjálfara þá verður hann tilkynntur.
Takk fyrir þolinmæðina og hjálpina í því að gera gott félag betra.

Með bestu kveðju,

Guðbjörg Norðfjörð

Íþróttastjóri Hauka

gudbjorg@haukar.is

s: 525-8702/861-3614

Fax: 525-8709

föstudagur, september 03, 2010

ATH. !!! Á þriðjudag 6.fl. kl. 17:00-18:00 á Ásvöllum

Knattspyrnudeild Haukar stendur í því þessa dagana að ráða þjálfara á kvennaflokka félagsins. Við erum að leita að einstaklingi í 100% starf sem yfirþjálfari og að auki mun þessi sami aðili þjálfa 3 flokka hjá félaginu. Af þessum sökum hefur þjálfunin ekki verið í jafnvægi sem við hörmum en við viljum biðja forelda/forráðamenn um að gefa okkur næstu viku til að vinna úr þessum málum. Ragnheiður Berg mun sjá um þjálfun 5.-6. flokks kvenna í næstu viku eða þar til málin leysast á farsælan hátt. Með þessu viljum við bæta faglega þátt starfsins til muna og búa markvisst vel að okkar frábæru iðkendum. Æfingatímar flokkanna munu breytast eitthvað og því verð ég að biðja forráðamenn um að fylgjast vel með á hér á bloggsíðunni og heimasíðu félagsins.

Áfram Haukar
Guðbjörg Norðfjörð

Íþróttastjóri Hauka