Laugardaginn 7. júli fer fram Hnátumót KSÍ, sem er eins konar undanfari Íslandsmóts, á ÍR-vellinum. Það eru 2 lið send til keppni og mér þætti vænt um það að sem flestir foreldrar myndu kanna við fyrsta tækifæri hvort stelpurnar séu til taks þessa helgi og láta mig vita sem fyrst. Það eru jú margir í fríum þessar sumarhelgar en ég vona að ég þurfi ekki að bíða eftir svörum frá foreldrum fram á síðustu stundu um það hvort stelpan mæti. Sendið mér endilega tölvupóst eða sms með svari. Ég mun að auki senda skráningarmiða á stelpurnar á æfingum, svona til að ýta aðeins við þeim sem lesa ekki þetta blogg.
Svona lítur leikjaplanið út:
| Leikdagur | Kl | Mót | Völlur | Heimalið | Gestir | |||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | lau. 07. júl | 10:00 | Hnátumót A-lið C | ÍR-völlur | Haukar | Stjarnan | ||
| 2 | lau. 07. júl | 10:30 | Hnátumót B-lið C | ÍR-völlur | Haukar | Stjarnan | ||
| 3 | lau. 07. júl | 11:00 | Hnátumót A-lið C | ÍR-völlur | Víkingur R. | Haukar | ||
| 4 | lau. 07. júl | 11:30 | Hnátumót B-lið C | ÍR-völlur | Víkingur R. | Haukar | ||
| 5 | lau. 07. júl | 12:00 | Hnátumót A-lið C | ÍR-völlur | Haukar | ÍR | ||
| 6 | lau. 07. júl | 12:30 | Hnátumót B-lið C | ÍR-völlur | Haukar | ÍR | ||
| 7 | lau. 07. júl | 14:00 | Hnátumót A-lið C | ÍR-völlur | Snæfellsnes | Haukar | ||
| 8 | lau. 07. júl | 14:30 | Hnátumót B-lið C | ÍR-völlur | Snæfellsnes | Haukar |
