Ég sé svo mannskapinn aftur mánudaginn 30. júlí, en þá hefst lokaundirbúningurinn fyrir Pæjumótið á Sigló sem fer fram 10. - 12. ágúst.
fimmtudagur, júlí 19, 2007
Þjálfari í vikufrí
Æfingavikuna 23. - 26. júlí verð ég í langþráðu sumarfríi. Æfingarnar verða í höndunum á aðstoðarþjálfurunum, Svövu og Söru Björk (að einhverju leyti, að því gefnu að U19 ára landsliðið sem Sara er að spila með komist ekki áfram í Evrópumótinu sem er í gangi núna hér á Íslandi).
Ég sé svo mannskapinn aftur mánudaginn 30. júlí, en þá hefst lokaundirbúningurinn fyrir Pæjumótið á Sigló sem fer fram 10. - 12. ágúst.
Ég sé svo mannskapinn aftur mánudaginn 30. júlí, en þá hefst lokaundirbúningurinn fyrir Pæjumótið á Sigló sem fer fram 10. - 12. ágúst.
mánudagur, júlí 16, 2007
Orðsending frá þjálfara 7.flokks kvenna
Nú er stóra leitin hafin af bikarnum sem 7.flokkur kvenna vann á síðasta Pæjumóti á Siglufirði, einhver sem hefur fengið bikarinn heim til sín hefur gleymt að skila honum. Vonandi finnst hann sem fyrst. Ef þið vitið eitthvað um ferðir hans látið mig þá vita í síma 693-2989, Hildur þjálfari 7.fl.kv.
mánudagur, júlí 09, 2007
Næsta stopp ... Pæjumótið á Sigló!
Eins og einhverjir hafa áttað sig á þá verður ekki farið á Símamótið hjá Breiðablik. Ákvörðunin var tekin í samráði við foreldrastjórnina. Ástæðurnar fyrir þessari ákvörðun voru þó nokkrar, en fyrst og fremst dræm mætingasókn í byrjun júní (þegar ég átti að fara að greiða staðfestingargjaldið á Símamótið) og dræm viðbrögð við skráningum á Hnátumótið sem fór fram sl. helg (og vildi svo til að lenti á nánast sama tíma og Símamótið er á). Ég taldi það því alveg nóg að fara á eitt mót í júlí þar sem sumarfrí og annað virðist vera að setja stórt strik í reikninginn hjá okkur þessa dagana. Vissulega hefði ég átt að tilkynna þetta foreldrum fyrr og verð bara að taka á mig sökina fyrir það.
Næsti stóri viðburður hjá flokknum er því Pæjumótið á Siglufirði sem byrjar föstudaginn 10. ágúst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:00 sunnudaginn 12. ágúst. Ég er byrjaður að dreifa skráningarmiðum til stelpnanna sem ég vona að ég fái útfyllta, með 2000 kr. staðfestingargjaldinu, sem fyrst. Mótsgjaldið er 8.000 krónur á keppanda. Það á enn eftir að taka ákvörðun um það hvort farið verður á einkabílum líkt og í fyrra, eða rúta leigð. Foreldrar mega endilega tjá mér skoðun sína á því hvort þau telji betri kostinn. Ef rúta verður tekin, þá má reikna með þeim kostnaði ofan á mótsgjaldið ásamt einhverjum matarkostnaði.
Nánari upplýsingar og endanlegt gjald fyrir mótið mun liggja bráðlega fyrir.
Krækja á heimasíða Pæjumótsins

fimmtudagur, júlí 05, 2007
Hnátumótið á laugardaginn
Það eiga allar sem geta að mæta á Hnátumót KSÍ á ÍR-völl á laugardaginn klukkan 09:30. Á staðnum mun ég tilkynna hverjar spila með A-liði og hverjar með B-liði. Leikjaplanið hefur aðeins breyst síðan síðast og lítur svona út núna:
| | Leikdagur | Kl | Mót | Völlur | Heimalið | Gestir | | |
| 1 | lau. 07. júl | 10:00 | ÍR-völlur | |
| |||
| 2 | lau. 07. júl | 10:30 | ÍR-völlur | |
| |||
| 3 | lau. 07. júl | 11:00 | ÍR-völlur | |
| |||
| 4 | lau. 07. júl | 12:00 | ÍR-völlur | |
| |||
| 5 | lau. 07. júl | 12:30 | ÍR-völlur | |
| |||
| 6 | lau. 07. júl | 14:00 | ÍR-völlur | |
| |||
| 7 | lau. 07. júl | 14:30 | ÍR-völlur | |
|
Ég mæli því með því að allar mæti með gott nesti til að narta í þegar líður á mótið.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)