Það fer að líða að einu stund ársins þegar almenningur aðlagar líf sitt að stöðu tunglsins og leggst í leti á ákveðnum tímapunkti til að borða súkkulaði. Hljómar furðulega en það er nú bara eins og það er. Eins og skólarnir þá taka yngri flokkarnir, nánar tiltekið 5. flokkarnir og yngri, sambærileg frí. Síðasta æfingin verður því á Sunnudaginn 1. apríl og fyrsta æfing eftir páskafrí verður fimmtudaginn 12. apríl.
Þessi síðasta æfing fyrir páskafrí, á sunnudaginn í Víðastaðaskóla kl. 13:00, verður með óhefðbundnu sniði: GRÍMUBÚNINGAÆFING! Allar að mæta í furðubúningum að eigin ósk. Þó verður að vera hægt að spila fótbolta í búningunum.