mánudagur, júní 29, 2009

Hnátumót KSÍ mánudaginn 6.júlí !!!!

Þær sem ég er með skráðar á mótið eru :Elma, Sigrún, Agnes, Alma,Gugga, Katla, Gyða, Ólavía, Andrea, Alexandra J, Katrín Gréta, Þórdís, Áslaug, Sunna, Katrín Hanna, Eydís, Dagrún, Lilja og Sóley !!!
Við erum skráðar með 3 lið .... þannig að okkur vantar nokkrar í viðbót ! Þið verðið að skrá ykkur í síðasta lagi á miðvikudaginn 1. júlí !!!!
(Svava, Vera, Silja,Brynja, Kristín, Elín, Magnea..... ????? !!!!)

Kveðja
Ragga
691 40 70

sunnudagur, júní 28, 2009

Krókurinn !! Takk fyrir helgina ....

Kæru Haukaskvísur og fjölskyldur !
Takk fyrir frábæra helgi á Króknum, stelpur þið stóðuð ykkur rosalega vel og voruð til fyrirmyndar :) Addi og Ingimar, foreldrastjórn, Jói, Kalli, aðrir liðsstjórar og foreldrar takk fyrir allt - þið stóðuð ykkur vel eins og stelpurnar !!!
Svo er bara að fara að gíra sig upp í næstu mót sem eru Hnátumót KSÍ (6. júlí Kópavogur) og Símamótið (16.-19. júlí Kópavogur) ... þær sem eiga eftir að skrá sig, verða að gera það í síðasta lagi núna í vikunni !!!!!
Frí á æfingu á morgun, mánudag.... æfing á þriðjudag kl. 11:45.

kveðja
Ragga

Eitt sem mig langar að nefna - stelpurnar áttu að taka með sér nammi fyrir 200,- + gos til að hafa á laugardeginum....... til þess að allar væru með eins og það var EKKI í boði að kaupa sér meira nammi !!!! Höfum þetta bak við eyrað næst.

fimmtudagur, júní 25, 2009

Komið að því ..... Krókurinn á morgun ! :)

Hæ hæ !
Stelpur munið eftir að pakka ykkar búning niður í tösku .... það verða ekki teknir fleiri búningar með :+) Þið sjáið um ykkar treyju alla helgina og skilið henni svo á æfingu á þriðjudaginn (frí á mánudaginn).
Ingimar, pabbi Andreu ætlar líkt og Addi, pabbi Agnesar að gista með stelpunum í skólanum - þannig að það er búið að manna það verkefni :) !!!

Hlakka til að hitta ykkur öll á morgun á Króknum - " í 20° hita og flottheitum" !!!! ;)
kveðja
Ragga
691 4070

Krókurinn - "mæting" !

Þeir tala um á heimasíðunni að það verði tekið á móti liðum í Árskóla frá 19-24 !!! Það eru e-r sem ætla að leggja af stað um hádegi til að reyna að fá pláss á tjaldstæðinu :) þið sem ætlið að vera þar - endilega leitið eftir Haukafána eða e-u Hauka .... ætlum að reyna að "merkja okkar svæði" Í rauninni er hægt að mæta á Krókinn hvenær sem er um daginn.
Verðum í bandi - sjáumst hress á Króknum á morgun !!!
ÁFRAM HAUKAR

kveðja
Ragga 691 4070

þriðjudagur, júní 23, 2009

Krókurinn !!!

Það er búið að taka út af reikningum þeirra sem áttu nóg fyrir mótinu (Gyða, Dagrún, Andrea, Þórdís,Katla, Alexandra J, Sigrún - ? með 3 í viðbót sem vantaði smá uppá) Hinar borga mótsgjaldið á föstudaginn þegar við komum á Krókinn (7.000) !!!! Foreldrastjórnin sér um nesti fyrir stelpurnar á milli leikja. Á föstudagskvöldinu þurfum við að hittast og skipta með okkur verkefnum helgarinnar :) !!!
Það sem þarf að taka með :
Dýnu, svefnpoka, kodda, stuttbuxur, legghlífar, fótboltasokka, takkaskó, utanyfirgalla, regngalla, hlý föt, aukaföt, auka skó/stígvél, sundföt, handklæði, náttföt, tannbursta+tannkrem, hárbursta, fyrir laugardagskvöldið má taka með nammi fyrir 200kr. + gos.
Addi, pabbi hennar Agnesar ætlar að gista hjá stelpunum upp í skóla - væri gott ef það væru 2 sem gistu hjá þeim .... þannig að það vantar 1 í það verkefni.
Minni á síðuna http://www.tindastoll.is/index.php?pid=1437 en þar sjáið þið allar upplýsingar um mótið.
Endilega hafið samband ef það eru e-r spurningar annars hittumst við bara á föstudaginn á Króknum.
Kveðja
Ragga 691 4070

mánudagur, júní 22, 2009

Krókurinn !

6. og 5. flokkur gista í menntaskólanum !!! Það er allt að verða klárt hjá 6. flokki nema hvað varðar að rukka mótsgjaldið - búið að greiða staðfestingargjaldið ! Stelpurnar fá miða með sér heim í vikunni - með öllum upplýsingum, hvað þarf að taka með o.s.frv.

Kveðja
Ragga

sunnudagur, júní 21, 2009

Styttist í Króksmótið !!!

Nokkrir dagar í mót.......
Þær sem ég er með skráðar í mótið eru : Gyða, Gugga, Dagrún, Andrea, Þórdís, Katrín Hanna, Katla, Alexandra J., Agnes Líf, Áslaug, Sunna, Silja, Alma, Brynja, Sigrún, Kristín, Elín, Alexandra Líf, Katrín Gréta.
Endilega látið mig vita ef ég er að gleyma e-i eða e-ð hefur breyst !!!

mánudagur, júní 15, 2009

Hnátumót KSÍ !! Frí á æfingu 17. júní - skrúðganga !

Ég minni á Hnátumót KSÍ 6. júlí í Kópavogi ! Þær sem eiga eftir að skrá sig á það (sjá neðar á blogginu) endilega gera það í þessari viku.... gæti þurft að fækka um 1 lið :S

17. júní ætlum við að hittast í Hellisgerði kl. 13:30 (við sviðið/litla bæinn) og taka þátt í skrúðgöngunni ! Fáið búninga..... endilega takið fjölskylduna með "í rauðu" :)

föstudagur, júní 12, 2009

Skilaboð til foreldra

Kæru foreldar í 6.fl. kvk.

Ég vil minna ykkur á að nauðsynlegt er að foreldrar stofni sérstaka bankabók fyrir þær stelpur sem þátt tóku í fjáröflun flokksins, þ.e. kökusölu og lakkríssölu.
Foreldrar leggja sjálfir inn lakkríságóðann á þá bók.

Við ætlum að greiða niður staðfestingagjaldið á Sauðakrók með fjáröflunarágóðanum og það auðveldar allar millifærslur að hver sé með sína bankabók. Samkvæmt mínum upplýsingum þá vantar bankabók fyrir: Eydísi Líf, Lilju og Sóley, Sunnu, Veru, Elín Dalrós og Ölmu. Svo vinsamlegast stofnið bankabækur Landsbankaútibúinu í miðbæ Hafnarfjarðar. Hún heitir Kristín Þorvaldsdóttir sem sér um þetta fyrir okkar flokk, þannig að hafið samband við hana þegar þið stofnið bók.

Kveðja Þórunn Erla
Í foreldrastjórn 6. fl. kvk

miðvikudagur, júní 10, 2009

"Til foreldra" ! :)

Það væri gott að vita hvort þið, foreldrar sem komið með á Krókinn ætlið að vera á tjaldstæðinu - upp á að taka frá pláss þannig að við getum öll verið "saman" !!!! Einnig vantar sjálfboðaliða :)....... þeir sem eru til í að "halda utan um stelpurnar" td. milli leikja, fylgja í morgunmat, í sund, gista í skólanum hjá stelpunum og annað eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ! Þá er verið að tala um að þessu verði skipt niður þannig að þetta lendi ekki allt á sömu foreldrunum eins og td. 2 mundu gista hjá stelpunum í skólanum, e-r mundu fylgja þeim í morgunmat, foreldrar úr A-liði mundu skiptast á að halda utan um liðið meðan B-liðið væri að keppa og öfugt o.s.frv. !!!

Áfram Haukar

kveðja
Ragga

Æfingar í sumar !

Frá og með 15. júní : Mánudagar, þriðjudagar, miðvikudagar og fimmtudagar á Ásvöllum kl.11:45-12:45 !!!! Þið sem eigið eftir að skrá ykkur á Landsbankamótið á Króknum 27. og 28. júní - verðið að skrá ykkur í síðasta lagi föstudaginn 12. júní !!!
Einnig þarf ég að vita hverjar geta verið með á Hnátumótinu, sem verður spilað í Fagralundi mánudaginn 6. júlí.

mánudagur, júní 08, 2009

Æfingarnatíminn helst út vikuna ! .... krókurinn !!!

Takk fyrir helgina stelpur - þið stóðuð ykkur mjög vel !!!
Í næstu viku breytast æfingarnar og verða fyrir hádegi .....
fáið miða um það í vikunni.
Þær sem eru búnar að skrá sig á Landsbankamótið á Króknum eru:
Gyða, Gugga, Dagrún, Andrea, Þórdís, Katrín, Katla, Alexandra, Agnes, Svava, Áslaug, Sunna, Silja, Bryndís ?, Elma?, Thelma?, Alma, Brynja, Sigrún?
Ég er búin að skrá 2 lið .... ég þarf að fá staðfestingu í vikunni hverjar ætla með, hverjar bætast við og þær sem voru ekki vissar (?).
http://www.tindastoll.is/index.php?pid=1437 - hér getið þið séð allar upplýsingar um mótið

laugardagur, júní 06, 2009

Draumalið Pepsi - Þróttarmót !!

Mæting hjá A og B liðum kl. 07:40 í fyrramálið á Þróttarvöllinn.
C - lið mætir kl. 12:30 á Þróttarvöllinn.(skemmtiatriði)

A-lið: Gugga, Dagrún, Andrea, Þórdís, Katla, Eydís, Alexandra J, Elma, Elín.
8:20 Haukar-Hk, völlur2 (Valbjarnarvöllur)
09:00 Fh-Haukar, völlur2
09:40 Haukar-Breiðablik, völlur2
Pizzuhlé
11:20 ÍR-HAukar, völlur3 (Valbjarnarvöllur)
úrslit spiluð um kl.12

B-lið: Sunna, Gyða, KatrínH, Yrsa, Lilja, Silja, Thelma, Rakel, Bryndís, Alexandra
8:20 Fh-Haukar, völlur10 (Þríhyrningur)
09:40 Haukar-Stjarnan, völlur9 (Þríhyrningur)
Pizzuhlé
10:40 Álftanes-Haukar, völlur7(Gervigras)
11:20 Haukar-Breiðablik, völlur7
úrslit spiluð um kl. 12

C-lið: Agnes, Alma, Brynja, Kristín, Sóley, Lejla, Magnea, Katrín
13:20 Stjarnan-Haukar, völlur4
14:00 Haukar-ÞrótturV, völlur11
Pizzuhlé
15:40 Haukar-Skallagrímur, völlur4
16:20 ÞrótturR1-Haukar, völlur11
úrslit spiluð um kl. 17:20

Sjáumst hressar á morgun og höfum rosalega gaman !!! :)
Ragga 691 4070 og Hildur

miðvikudagur, júní 03, 2009

Þróttarmót - sunnudaginn 7. júní !

Mótsgjaldið 2.200,- þarf að vera búið að greiða fyrir föstudaginn !!!!!!!!!!!!!
1101-26-5458 kt. 110479-3529. Set liðin og leikjaplanið inn á morgun fimmtudag en A og B lið eiga að mæta kl. 7:30 ... leikir hefjast um 8:00. C lið mætir 12:30 í skemmtun .... leikir hefjast um 13:20. Þetta á bara eftir að vera gaman hjá okkur :) Farið snemma að sofa á laugardeginum og vaknið það snemma á sunnudeginum að þið getið fengið ykkur góðan morgunmat. Takið með ykkur gott nesti.
Kveðja
Ragga og Hildur

mánudagur, júní 01, 2009

Æfingar !

Æfingatímarnir haldast til ca. 10. júní en eftir það verðum við 4x í viku - fyrir hádegi. Ég læt ykkur vita með nýja æfingatíma þegar nær dregur !!!
Þróttarmótið : Mótsgjald er 2.200 kr. á stelpu og þið þurfið að vera búnar að leggja þá upphæð inn á 1101-26-5458 kt. 110479-3529 í síðasta lagi föstudaginn 5. júní !!!
A og B lið keppa fyrir hádegi en C lið eftir hádegi - það er ekki komið leikjaplan eða tímasetning, ég læt ykkur vita um leið og ég veit e-ð meira.

kveðja
Ragga og Hildur