miðvikudagur, apríl 30, 2008

Fyrsta mót sumarsins

1. júní verður fyrsta mót sumarsins. Það er landsbankamótið hjá aftureldingu. Keppt verður á tungubakkavelli í mosó.

Það fá allir verðlaunapening að lokum, ekki verið keppt um sæti heldur er tilgangur mótsins að allir fái verkefni við hæfi. Miðað við stærð hópsins myndi ég vilja fara með A, B og C lið og hafa þá ekki nema 1-2 varamenn í hverju liði þannig að allar fái að spila sem mest. En svo við getum farið með 3 lið þurfa nánast allar stelpurnar að koma. Þess vegna bið ég alla foreldra um að commenta í commentakerfið á eftir þessari færslu um hvort dóttir þeirra koma, eða ekki. Því fyrr, því betra svo ég geti skráð okkurtil móts hvort sem það verði með A og B lið eða A, B og C.

KV. Svava

Mánudagsæfingar

Það náðist að semja við FH-inga um að við fáum að halda mánudagsæfingunum okkar í Risanum. Þannig að æfingaáætlunin verður eins út mai og svo tekur við sumaræfingatafla í byrjun júní.

Svava

þriðjudagur, apríl 29, 2008

1. mai

Frí verður á æfingu á fimmtudaginn 1. mai.

kv. Svava

mánudagur, apríl 28, 2008

Mátun

Á morgun þriðjudag verður mátun á nýju æfingagöllunum uppá Ásvöllum eftir æfingu kl 18:00. Allar sem ætla að fá galla verða að koma í mátun svo hægt sé að ganga frá pöntun.

þriðjudagur, apríl 22, 2008

Framundan

Á morgun miðvikudag er foreldrafundur uppá Ásvöllum kl 18:00. Rétt hálftími þannig að hörðustu fótboltamömmurnar og pabbarnir bruna beint heim og horfa á meistaradeildina ;)

Á fimmtudaginn verður frí á æfingu, ég afsaka að vera ekki búin að láta vita fyrr. Áttaði mig ekki á hvaða dagur var. Gef stelpunum frí því ég reikna með að þær fari allar í víðavangshlaup fyrr um daginn ... eða er það ekki ennþá ?!?! Var allavega árlegur viðburður þegar ég var stelpa að rústa víðavangshlaupinu á sumardeginum fyrsta ;)

Á mánudaginn verður síðan síðasti tíminn okkar í risanum. Haukar missa alla tímana sína þar 1. mai. Það mun koma æfing inn í staðin uppá ásvöllum, hvenar veit ég ekki alveg. Læt vita þegar búið er að nelga tímann niður.
En í tilefni þess að þetta sé síðasti tíminn okkar ætlar Stjarnan að koma í heimsókn og keppa æfingaleik við okkur. Mæting rétt fyrir kl 17:00 með allar græjur, og ég minni á legghlífar!!



Síðasta mánudag spiluðum við æfingaleik við Álftanes. 14 stelpur mættu, engir varamenn þannig að stelpurnar tóku vel á. Ég var mjög ánægð með þær allar. Fín bárátta og vorum að spila boltanum oft ágætlega á milli. A-liðið vann sinn leik 8-2. B-liðið tapaði 7-1 eftir að hafa verið aðeins 2-1 undir í hálfleik. En í b-liðinu eru margar stelpur sem byrjuðu að æfa fótbolta í vetur og hafa tekið miklum framförum.

Vonum svo að sumarið verði frábært svo við getum notið þess að spila fótbolta í góðu veðri

Svava

föstudagur, apríl 18, 2008

Foreldrafundur

Foreldrafundur verður næsta miðvikudag, 23. april kl 18:00 uppi á annari hæð á Ásvöllum. Verður ekki lengri en ca hálftíma.

Ákveðið verður hvaða mót verður farið á í sumar, mynduð fjáröflunarnefnd og sýndir verða æfingagallar/utanyfirgallar fyrir flokkinn.

Vonast til að sjá sem flesta, líka foreldra þeirra stelpna sem lítið hafa æft í vetur en ætla sér að vera með í sumar.

Haukakveðja
Svava

(minni á leikinn á mánudaginn, færslan komin pínu neðarlega á síðuna :)

Myndir úr Náttfatapartíinu








miðvikudagur, apríl 16, 2008

Æfingarleikur

Næsta mánudag verður æfingarleikur við Álftanes á æfingartíma okkar uppí Risa kl 17:00. Mæting er 10 mín áður, vel klæddar (ég kem með keppnistreyjur), takkaskóna vel reimaða, legghlífar, vatnsbrúsa og keppnisskapið :)

Áfram Haukar!!!

Svava

Mætingarbikar Mars

Það var hún Gugga sem fékk mætingarbikarinn fyrir marsmánuð. Gugga hefur verðir ótrúlega dugleg að mæta í allan vetur og því flott að hún fékk bikarinn í fyrsta skiptið sem hann var í boði.

Splæsti semsagt í bikar sem verður veittur mánaðarlega til þeirrar stelpu sem hefur verið duglegust að mæta síðastliðin mánuð. Held það sé að skila sér, jafnt og snjórinn að fara og allt það því mætingin hefur verið betri uppá síðkastið. Núna er það bara að halda áfram að vera duglegar að mæta og eiga möguleika að fá bikarinn í byrjun næsta mánaðar.


Náttfatapartýið heppnaðist vel og fóru allir glaðir heim :)

Áfram Haukar

miðvikudagur, apríl 09, 2008

Hlauptu í tilefni 77 ára afmælis Hauka

Laugardaginn nk. þann 12. apríl eru 77 ár síðan þrettán eiturhressir guttar stofnuðu Knattspyrnufélagið Hauka. Í tilefni afmælisins verður Almenningshlaup Hauka haldið á Ásvöllum á laugardaginn kl. 13:00. Boðið verður upp á 7 km hlaup, Ástjarnarhringinn (ca. 2,5 km) og svo stuttan hring til göngu eða skokks á Ásvallasvæðinu fyrir þá yngstu og aðra rólegri. Skráning hefst klukkan 12:00 og eru allir hvattir til að taka þátt. Stelpur takið endilega foreldra ykkar með í hlaupið. Eftir hlaupið er svo afmæliskaffi fyrir alla hlaupagikki í Veislusalnum í Íþróttamiðstöðinni.

Mætum öll!

þriðjudagur, apríl 01, 2008

Náttfatapartý

Á fimmtudaginn verður náttafatapartý hjá 6. flokki kvenna. Gleðin verður uppi á annari hæð á Ásvöllum frá kl 17-18. Leyfilegt er að koma með gos og sparinesti (allt er gott í hófi)

Kv. Svava

(æfing fellur niður á fimmtudaginn í staðinn)