þriðjudagur, október 31, 2006

Æfingamót á sunnudaginn

ÍR heldur æfingamót á sunnudaginn 5. nóvember og er okkur boðið. Afturelding verður einnig á mótinu og jafnvel að fjórða liðið bætist við. Mótið byrjar klukkan 13:00 og því er mæting kl. 12:30 á ÍR-völlinn sem er rétt hjá Mjóddinni. ÍR var að vígja nýtt gervigras og verður mótið haldið á því.
Að sjálfsögðu fellur æfingin á sunnudaginn í Víðistaðaskóla því niður, en aðeins þennan sunnudaginn.

föstudagur, október 27, 2006

Foreldrastjórn tekin til starfa

Foreldrafundur var haldinn á miðvikudaginn og var mætingin léleg. Aðeins 7 foreldrar létu sjá sig og aðeins 5 gátu setið fundinn! Ég leyfi foreldrum að njóta vafans og skrifa hluta af sökinni á mig; maður veit aldrei hversu margir "miðar til foreldra" skila sér alla leið og síðan kom einhver með þá ábendingu að hugsanlega hentaði 20:00 betur fyrir foreldrafundi. Það væri fínt að fá athugasemdir frá ykkur foreldrum hvaða tími hentar best fyrir svona fundi.

En engu að síður var sett saman fjögurra manna foreldrastjórn og vona ég að jafnvel fleiri muni bætast við. Það eru ekki mörg kostnaðarsöm verkefni framundan hjá flokknum, og helst hægt að nefna Pæjumótið í ágúst í því samhengi, en engu að síður þarf að standa fyrir einhverjum fjáröflunum í vetur. Meira um það síðar.

Upplýsingar um foreldrastjórnina má finna hér til hliðar í valmyndinni.

Týnd flíspeysa

Hún Sóley týndi rauðri flíspeysu á æfingunni í Risanum á mánudaginn.
Peysuna var hvergi að finna í lok æfingunnar og því líklegt að einhver hafi tekið hana í misgripum. Peysan er merkt á miða inni í peysunni. Endilega kannið hvort þessi flík hafi endað hjá ykkur, og ef svo er hafið þá samband við mig.

Kristján Ómar, s. 695 5415

föstudagur, október 20, 2006

Foreldrafundur!

Foreldrafundur verður haldinn kl. 18:00 miðvikudaginn 25.október á 2.hæðinni í íþróttahúsinu á Ásvöllum. Fundur tekur vonandi ekki mikið meira en hálftíma, en dagskrá fundarins verður í grófum dráttum þessi:

1. Fulltrúi barna og unglingaráðs setur fundinn. Óskað eftir fólki í foreldrastjórn. Tekið á móti iðkendaskráningablöðum.
2. Þjálfari situr fyrir svörum.
3. Fulltrúi barna og unglingaráðs gengur frá stofnun foreldrastjórnar, svarar
spurningum og fl.
4. Fundi slitið og foreldrastjórn tekur til starfa.

Ég vona að sem flestir foreldrar og forráðamenn mæti.

miðvikudagur, október 18, 2006

ÍR-ingar aftur í heimsókn

Þá er komið að seinni heimsókn ÍR-stelpna. Á fimmtudaginn 19. október kemur yngra árið frá ÍR og spilar æfingaleik við okkur á æfingatímanum milli 17:00-18:00. Það er mikilvægt að allar séu mættar og byrjaðar að hita upp helst ekki minna en korteri fyrir leikinn, svo fyrsti leikurinn geti hafist um leið og völlurinn losnar.

Sjáumst á fimmtudaginn!

Kristján Ómar

föstudagur, október 06, 2006

ÍR-ingarnir of stór biti fyrir okkur

ÍR-stelpur tóku okkur í bakaríið á fimmtudaginn og gáfu okkur fullt af sætabrauði. En þrátt fyrir það er þjálfarinn (ég) bara sáttur við frammistöðuna og sérstaklega hversu áhugasamar og mikið allar Haukastelpurnar lögðu á sig í leikjunum.

ÍR er, eins og áður hefur komið fram, Íslandsmeistari í þessum aldursflokki og mætti auk þess bara með stelpur á eldra ári í leikinn á móti okkur. Spilaðir voru fjórir leikir og fóru þeir: 3:0, 4:0, 3:0 og 0:0. Frábært hjá yngra árs stelpunum hjá okkur að ná jafntefli í síðasta leiknum á móti svona sterku liði!

Við getum lært margt af ÍR-stelpunum og þá einna helst hvernig á að fagna mörkum á glæsilegan hátt - líklega eru þær líka Íslandsmeistarar í fagnaðarlátum. Kannski vorum við svona lítið í því að skora mörk því við vorum ekki búin að æfa hvernig átti að fagna þeim!? :) Úr því verður bætt á næstu æfingum.

Alla vega, nú er bara að halda áfram á fullu og næsta æfing er á sunnudaginn í Víðistaðaskóli klukkan 14:00.

Haukakveðja

Kristján Ómar