þriðjudagur, febrúar 24, 2009

SUMARFRÍ

Mótanefnd KSÍ tekið þá ákvörðun varðandi niðurröðun leikja sumarið 2009 að engir leikir verði á tímabilinu 20. júlí til og með 5. ágúst í 4. flokki og yngri aldursflokkum. Hér er eingöngu átt við leiki á vegum KSÍ en ekki opin mót aðildarfélaga.Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að mikið er um sumarfrí á þessu tímabili og því vill mótanefnd koma til móts við leikmenn í yngstu flokkum og foreldra þeirra.

Kveðja Tóti

laugardagur, febrúar 21, 2009

Knattspyrnuakademía Íslands

Námskeið fyrir 9-11 ára stelpur sem eru útileikmenn frá 24. feb til 24. mars
Aðaláhersla verður lögð á að þjálfa grunnþætti knattspyrnu sem skiptir miklu máli fyrir þennan aldurshóp auk þess verður farið í leiki og keppnir sem reyna á leikni með bolta. Hópnum verður skipt eftir aldri og getu til að tryggja að allir fái sem mest út úr námskeiðinu.

Æfingarnar fara fram á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum kl: 06.20 – 07:20.

Þjálfarar á námskeiðunum hjá stelpunum eru:
Lea Sif Valsdóttir
Páll Árnason
Kristrún Lilja Daðadóttir
Rakel Logadóttir.

Markmannsskóli fyrir 9 - 14 ára stráka og stelpur – 24. feb til 24. mars.
Í annað skipti býður Knattspyrnuakademían upp á sérstakan markmannsskóla þar sem Guðmundur Hreiðarsson mun hafa yfirumsjón auk þess sem markmenn úr Landsbankadeild koma í heimsókn.

Æfingarnar verða á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum kl: 06.20 – 07.20.

Allir þátttakendur á þessum námskeiðum fá æfingaföt KAÍ sem inniheldur treyju, stuttbuxur og fótboltasokka.

Þátttökugjald á öllum námskeiðin er 15.000 kr. með morgunhressingu.

Skráning á námskeiðin fer fram á netfanginu: korinn@simnet.is <mailto:korinn@simnet.is>

fimmtudagur, febrúar 19, 2009

HALLÓ STELPUR SKOÐIÐ VIDEÓBARINN ÞAÐ ER KOMIÐ NÝTT MYNDBAND MEÐ EINUM 6 ÁRA GÖMLUM STRÁK SEM HEFUR VAKIÐ ÁHUGA OG EFTIRTEKT HJÁ LIÐUM EINS OG REAL MADRÍD FRÁ SPÁNI.MUNA SVO AÐ ÆFINGIN SKAPAR MEISTARANN:)

ÞÆR SEM EIGA AÐ MÆTA UPP Í KÓR Á SUNNUDAGINN MEÐ 5 FLOKKI ERU ÞESSAR
MÆTING ER KLUKKAN 14:00 OG ER BÚIÐ 15:00

ÞÓRDÍS
ALEXSANDRA
KATLA
GUGGA
DAGRÚN

ÞAÐ VERÐUR ENGIN ÆFING FYRIR 6 FLOKK UPP Í KÓR UM HELGINA

KVEÐJA TÓTI

þriðjudagur, febrúar 10, 2009

Fundur foreldrastjórnar 27.jan.´09

Daginn öll !

Við hjá foreldrastjórn ákváðum að senda úrdrátt af foreldrafundinum sem haldinn var að Ásvöllum 27.jan ´09.
Á fundinn mættu foreldrar frá 12 stelpum.
Við vorum sammála um að allar væru þær vel gallaðar. Hildur kom inná að það væri talað um hve gaman væri að sjá hve duglegar þær væru að mæta í haukafötum á æfingar og keppnir .
Rætt var um fjáröflun ,hvort að foreldrar hefðu einhvern áhuga á því og þá hvað ætti að gera .
Ákveðið að athuga hvort að strákarnir í 6.fl.væru með eh í gangi.
Rætt um möguleika á að selja klósettpappír og hafa kökubasar í Firði eh föstudaginn ( ath. allt er þetta undir hverjum og einum komið það þarf enginn að vera með frekar en hann vill) . Einnig má koma því að að ef fólk hefur einhverjar góðar hugmyndir þá endilega láta vita.
Ferð í Vogana hefur ekki verið dagsett en eina ósk foreldra var að hún væri ekki síðustu helgina í feb. vegna vetrarleyfa.
Æfingar í Kórnum voru til umræðu og sitt sýndist hverjum. Þær verða hins vegar ekki lengi í viðbót.
Við stefnum á mót á Sauðárkróki 25.-28. júni og síðan stefnum við á Símamótið í Kópavogi.

Tóti tjáði sig um mætingar hjá stelpunum og fannst þær margar ekki vera að mæta nógu vel.
Einnig að gott væri fyrir hann og Hildi að fá að vita hvort að þær ætluðu að mæta eða ekki , það skiptir auðvitað máli hvort að maður undirbýr æfingu fyrir 25 eða 8 .......
Síðan kom hann að því að það væri gott að fá athugasemdir við bloggfærslurnar þ.e.a.s að við mættum vera iðnari við að svara , svona til að hann mundi sjá að við værum að lesa bloggið. Við foreldrar vorum sammála um að við færum flest öll inná bloggið en værum ekki að svara......
Sms skilaboð er verið að nota þannig að ef að þið foreldrar eruð ekki að fá sms boð þá endilega setjið ykkur í samband við Tóta eða Hildi .
Annað var nú ekki rætt .
Læt þetta því duga.

Kveðja, Kristín Alexöndru mamma

fimmtudagur, febrúar 05, 2009

ÆFINGALEIKUR

HALLÓ STELPUR VIÐ ÆTLUM AÐ AÐ SPILA ÆFINGALEIK VIÐ 5 FLOKK KVENNA Á MÁNUDAGINN NÆSTA Á OKKAR ÆFINGATÍMA OG MUNA SVO ÆFINGUNA Í KÓRNUM Á SUNNUDAGINN HÚN HILDUR VERÐUR MEÐ ÆFINGUNA

ÞVÍ AÐ ÉG VERÐ MEÐ 4 FLOKK KVENNA Í ÚRSLITUM FUTSAL INNANHÚS FÓTBOLTANS Í AUSTURBERGI EINNIG Á 5 FLOKKUR KVENNA AÐ SPILA Á LAUGARDAGINN NÆSTA Í ÚRSLITUM Í FUTSAL KLUKKAN 12:00 EF ÞIÐ HAFIÐ ÁHUGA Á AÐ STYÐJA ÞÆR ÞÁ VÆRI GAMAN AÐ SJÁ YKKUR ÞAR LEIKIRNINR VERÐA Í ÍÞRÓTTAHÚSIN Á ÁLFTANESI

KVEÐAJ TÓTI