mánudagur, janúar 29, 2007

Takk fyrir VogaÓlympíuleikana

Ég má til með að þakka kærlega öllum þeim sem á einn eða annan hátt komu að Vogaferðinni. Ferðin var frábærlega vel heppnuð í alla staði og er ég alveg í skýjunum yfir því hversu vel sambúðin gekk og hvað stelpurnar voru duglegar. Þessi ferð verður án nokkurs efa til þess að þjappa stelpunum saman og styrkja bönd innan hópsins. Grunnurinn að góðri liðsheild er í mótun sem er á réttri leið.

Íris, mamma Elísu, var með myndavél á staðnum og þegar ég hef fengið myndirnar frá henni þá skelli ég nokkrum góðum hingað inn.

fimmtudagur, janúar 25, 2007

Enn um Vogaferðina

Það var eins og ég bjóst við, skráningarblöðunum rigndi inn á æfingunni áðan og í raun aðeins nokkrar stelpur sem eiga eftir að skrá sig eða tilkynna að þær komist ekki með.

Ég eru einhverjir sem eiga eftir að greiða/skila skráningarblaði en eru búnir að tilkynna áhuga á að koma með. Einfaldast er að staðfesta þáttöku með því að millifæra á rnr. 0545-26-50088 kt. 141180-5179. og mæta svo á svæðið á laugardaginn kl. 12:45 upp í Vallarhúsið á Ásvöllum. Brottför er áætluð kl. 13:00.

Þeir foreldrar sem ýmist eru búin að gefa færi á sér að keyra/sækja og jafnvel vera á staðnum með okkur - ég mun hafa samband við ykkur á morgun, föstudag, og láta vita hvort þörf sé á ykkar starfskrafti.

miðvikudagur, janúar 24, 2007

Skráning í Vogaferðina

Ég verð til taks í Vallarhúsinu á Ásvöllum eftir æfinguna hjá stelpunum á morgun kl. 18:00 og tek á móti skráningum og greiðslum fyrir Vogaferðina. Þeir sem ekki hafa fengið skráningarblað geta gengið frá einu slíku á staðnum og gert upp við mig. Mér er ekki búið að berast mörg skráningarblöð og býst því við að öll hrúgan detti inn á morgun.

mánudagur, janúar 22, 2007

Vogaferðin - upplýsingar

Ég gleymdi að taka það fram á tossalistanum á miðanum sem ég sendi stelpurnar heim með að þær þurfa að taka með sér sæng/svefnpoka. Það eru dýnur á svæðinu sem hægt er að sofa á en ef viðkomandi vill sofa á einhverju betra þá er öllum frjálst að taka með sér vindsæng eða e-ð sambærilegt.

föstudagur, janúar 19, 2007

Um æfingagjöldin!

Ég vil minna fólk á að nú eiga allir að hafa gert upp æfingagjöldin fyrir tímabilið 2006-7. Æfingagjaldið er 34.000 krónur og er hlutur iðkenda 10.000 krónur, sem þýðir að Hafnarfjarðarbær greiðir niður 24.ooo krónur af æfingagjaldinu. Æfingatímabilið er september 2006 til út ágúst 2007.
Ef þér hefur ekki borist greiðsluseðill er líklegt að Haukar séu með rangar, eða engar, upplýsingar um iðkandann. Til að kippa því í liðinn bendi ég fólki á að ná sér í skráningarblað hérna á valmynd til hægri og koma með á næstu æfingu. Þá höfum við þær upplýsingar sem bankinn þarf til að senda út greiðsluseðil.

Stelpur! Spyrjið foreldra ykkar hvort þau séu búin að ganga frá æfingagjöldunum!

miðvikudagur, janúar 17, 2007

Jólafríið búið og Voga-Ólympíuleikarnir framundan

Þá er jólafríinu lokið og allt komið aftur á fullt. Það er nóg í gangi framundan! Í febrúar munum við kíkja í heimsókn í Laugardalinn til Þróttar, en efst á baugi er laugardagurinn 27. janúar þegar flokkurinn mun halda suður með sjó í Vogana og dvelja í íþróttahúsi/tómstundaheimilinu þar á bæ í einn sólarhring og bralla ýmislegt skemmtilegt. Þar verða settir upp "Ólympíuleikar" þar sem stelpunum verður skipt í lið sem keppa sín á milli í hinum ýmsu íþróttagreinum. Einnig verður haldið pizzapartý, kíkt í sundlaugina sem er við íþróttahúsið og margt fleira til að þjappa stelpunum saman.

Á æfingunni á fimmtudaginn 18. janúar og á sunnudagsæfingunni 21. janúar mun ég dreifa skráningarblöðum fyrir Vogaferðina. Því skráningablaði, ásamt þátttökugjaldinu, þarf að skila til mín í síðasta lagi á fimmtudagsæfingunni 25. janúar.

ÖNNUR MIKILVÆG TILKYNNING!!!!
Sunnudagsæfingunni í Víðistaðaskóla hefur verið flýtt og mun héðan í frá vera frá 13:00-14:00. Ég vonast til að þessi breyting, þótt smávægileg sé, muni verða til þess að ásóknin hjá stelpunum á þessar æfingar verði betri. Ég veit það að einhverjum fannst tíminn 14:00-15:30 á sunnudegi vera helst til seint um daginn, margir farnir að bardúsa eitthvað annað svona langt liðið á daginn, osfrv. Ég hvet ykkur foreldra til að vera dugleg við að drífa stelpurnar á þessar æfingar.