fimmtudagur, september 27, 2007

Fyrsta æfingin í Risanum - breytt æfingatafla (uppfært)

Jæja þá er október loksins að renna upp og það þýðir að æfingin í Risanum bætist við á mánudögum kl. 17-18. Þá mun æfingin á fimmtudögum færast fram um einn klukkutíma.

Æfingarnar verða í framhaldi svona
  • Mánudagar 17-18 í Risanum
  • Þriðjudagar 17:00-18:00 á gervigrasinu á Ásvöllum
  • Fimmtudagar 16:00-17:00 á gervigrasinu á Ásvöllum
Ég kveð annars að mestu í bili og læt Svövu meira um skrifin hér í framhaldinu. Kv. Kristján Ómar

föstudagur, september 14, 2007

Skyldumæting á Ásvelli á morgun

Á morgun leikur taka Haukar á móti Íslandsmeistaratitli fyrir sigur í 2. deild karla og verður eflaust mikið fjör á Ásvöllum. Síðasti leikurinn í mótinu verður á móti ÍR á morgun kl.14 á Ásvöllum. Haukar hafa þegar unnið deildinni svo að í lok leiks verður titilinn veittur og hvet ég allt Haukafólk til að mæta á staðinn til að taka þátt í gleðinni.

sunnudagur, september 02, 2007

Árgangaskipti, ný æfingatafla og (næstum því) nýr þjálfari

Þá er komið að því að eldra árið gangi upp í 5. flokk og nýjar stelpur koma upp úr 7.flokk. Ný æfingatafla tekur gildi á morgun, 3. september, og nýr þjálfari hefur verið ráðinn til starfa: Svava Björnsdóttir.

Svava er 24 ára gömul og var mín hægri hönd í sumar, stjórnaði mörgum æfingum, kom með á mótin og fór með til Siglufjarðar. Svava þjálfaði 5. flokk kvenna fyrir nokkrum árum og hóf að leika með meistaraflokk kvenna hjá Haukum fyrir tæpum áratug . Svava verður þó frá æfingum í þó nokkurn tíma vegna hnéaðgerðar sem hún þurfti nýlega að fara í, svo hún ætti að geta einbeitt sér vel að þjálfuninni. Svava mun ljúka að ná sér í tilskilin þjálfararéttindi í október og fram að þeim tíma (og líklega eitthvað aðeins lengur :) mun ég aðstoða hana við að gera kennsluáætlanir til skemmri og lengri tíma og vera henni innan handar á allan hátt.

6.flokkur kvenna æfir í framhaldinu á:
  • þriðjudögum kl. 17-18 úti á Ásvöllum
  • fimmtudögum kl. 17-18 úti á Ásvöllum
  • mánudögum kl. 17-18 í Risanum á Kaplakrika (tekur gildi 1. október)
Það eru sem sagt tvær æfingar í viku í september og sú þriðja bætist við í október.