föstudagur, október 27, 2006

Foreldrastjórn tekin til starfa

Foreldrafundur var haldinn á miðvikudaginn og var mætingin léleg. Aðeins 7 foreldrar létu sjá sig og aðeins 5 gátu setið fundinn! Ég leyfi foreldrum að njóta vafans og skrifa hluta af sökinni á mig; maður veit aldrei hversu margir "miðar til foreldra" skila sér alla leið og síðan kom einhver með þá ábendingu að hugsanlega hentaði 20:00 betur fyrir foreldrafundi. Það væri fínt að fá athugasemdir frá ykkur foreldrum hvaða tími hentar best fyrir svona fundi.

En engu að síður var sett saman fjögurra manna foreldrastjórn og vona ég að jafnvel fleiri muni bætast við. Það eru ekki mörg kostnaðarsöm verkefni framundan hjá flokknum, og helst hægt að nefna Pæjumótið í ágúst í því samhengi, en engu að síður þarf að standa fyrir einhverjum fjáröflunum í vetur. Meira um það síðar.

Upplýsingar um foreldrastjórnina má finna hér til hliðar í valmyndinni.

Engin ummæli: