ÍR-stelpur tóku okkur í bakaríið á fimmtudaginn og gáfu okkur fullt af sætabrauði. En þrátt fyrir það er þjálfarinn (ég) bara sáttur við frammistöðuna og sérstaklega hversu áhugasamar og mikið allar Haukastelpurnar lögðu á sig í leikjunum.
ÍR er, eins og áður hefur komið fram, Íslandsmeistari í þessum aldursflokki og mætti auk þess bara með stelpur á eldra ári í leikinn á móti okkur. Spilaðir voru fjórir leikir og fóru þeir: 3:0, 4:0, 3:0 og 0:0. Frábært hjá yngra árs stelpunum hjá okkur að ná jafntefli í síðasta leiknum á móti svona sterku liði!
Við getum lært margt af ÍR-stelpunum og þá einna helst hvernig á að fagna mörkum á glæsilegan hátt - líklega eru þær líka Íslandsmeistarar í fagnaðarlátum. Kannski vorum við svona lítið í því að skora mörk því við vorum ekki búin að æfa hvernig átti að fagna þeim!? :) Úr því verður bætt á næstu æfingum.
Alla vega, nú er bara að halda áfram á fullu og næsta æfing er á sunnudaginn í Víðistaðaskóli klukkan 14:00.
Haukakveðja
Kristján Ómar
Engin ummæli:
Skrifa ummæli