Það voru hvorki fleiri né færri en 16 hörkunaglar sem mættu á æfinguna á fimmtudaginn, þrátt fyrir ömurlegt veður, og spiluðu fótbolta eins og þær ættu lífið að leysa. Virkilega gaman að sjá að stelpurnar (og foreldrarnir) láta ekki íslenska (ó)veðráttu stoppa sig í fótboltaspriklinu.
Annars er ég almennt lítið um það að fresta æfingum vegna veðurs. Á Ásvöllum er fínn þreksalur sem hægt er að leita til ef veðrið er brjálað, og fara í leiki eða gera styrktaræfingar/teygjur osfrv.
Sjáumst á ÍR-vellinum á sunnudaginn
laugardagur, nóvember 04, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli