mánudagur, nóvember 06, 2006

Baráttuhundar í brjáluðu veðri!

Það var greinilegt að æfingin sl. fimmtudag var fínn undirbúningur fyrir óveðursfótboltann sem beið okkar á ÍR-velli í gær. Flest benti til þess að æfingamótið yrði flautað af en ÍR-þjálfarinn stóð fastur á því að það væri "bara nokkuð skjólsamt hjá okkur á ÍR-vellinum". Svo það var kýlt á leikina.

Þetta allt varð ennþá minna spennandi þegar ÍR-þjálfarinn lét það fylgja með að hin liðin, Valur og Afturelding, hefðu hætt við mótið svo það yrðu bara ÍR og Haukar enn og aftur. Ég var farinn að hugsa upp á afsökunum gagnvart foreldrum á því hvers vegna ég væri að láta eitt besta liðið á landinu í þessum flokki kjöldraga okkur í þriðja skiptið, en það kom á daginn að þær afsakanir voru óþarfar.

Þó að stelpurnar í fyrsta leiknum hefðu verið eitthvað sofandi þá tóku við af honum þrír hörkuflottir leikir þar sem hver og ein einasta stelpa lagði sig 100% fram. Það eru engar ýkjur að ég var gríðarlega ánægður og stoltur af öllum stelpunum. Baráttan og vinnusemin í þeim yljaði mér um hjartarætur langt fram á kvöld, enda veitti ekki af þar sem nánast allur líkaminn var kalinn eftir leikina. Eftir jafntefli í öðrum leiknum og naumt tap í þeim þriðja tókst okkur að knýja fram sigur 0-1 með marki frá Kristínu.

Áhuginn og fórnfýsnin skein út úr hverju Haukaandliti og það eru akkurat svona móment sem eru vatn á myllu þjálfara; þegar maður sér alla gera sitt allra besta og eru duglegar að fara eftir leiðbeiningum. Ómetanlegt.

Hér fylgja með nokkrar myndir frá gærdeginum

Karen, Guðlaug, Yrsa og Tekla voru mættar snemma og tilbúnar í slaginn.

Það fer sko enginn bolti inn hjá okkur. Varnarmúrinn þéttur
Og svo kom haglélið og enginn sá neitt :)

Geggjuð mynd af Álfeyju á sprettinum

Kristínu markaskorara fagnað.
Og hún brosir að sjálfsögðu út að eyrum

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

I agree with many points. But in some areas, I feel we need to be more aggressive. Just my opinion. Love ya. vintage wedding dresses. GPS Louboutin Shoes Christian Louboutin Pumps Empire Wedding Dresses