miðvikudagur, janúar 17, 2007

Jólafríið búið og Voga-Ólympíuleikarnir framundan

Þá er jólafríinu lokið og allt komið aftur á fullt. Það er nóg í gangi framundan! Í febrúar munum við kíkja í heimsókn í Laugardalinn til Þróttar, en efst á baugi er laugardagurinn 27. janúar þegar flokkurinn mun halda suður með sjó í Vogana og dvelja í íþróttahúsi/tómstundaheimilinu þar á bæ í einn sólarhring og bralla ýmislegt skemmtilegt. Þar verða settir upp "Ólympíuleikar" þar sem stelpunum verður skipt í lið sem keppa sín á milli í hinum ýmsu íþróttagreinum. Einnig verður haldið pizzapartý, kíkt í sundlaugina sem er við íþróttahúsið og margt fleira til að þjappa stelpunum saman.

Á æfingunni á fimmtudaginn 18. janúar og á sunnudagsæfingunni 21. janúar mun ég dreifa skráningarblöðum fyrir Vogaferðina. Því skráningablaði, ásamt þátttökugjaldinu, þarf að skila til mín í síðasta lagi á fimmtudagsæfingunni 25. janúar.

ÖNNUR MIKILVÆG TILKYNNING!!!!
Sunnudagsæfingunni í Víðistaðaskóla hefur verið flýtt og mun héðan í frá vera frá 13:00-14:00. Ég vonast til að þessi breyting, þótt smávægileg sé, muni verða til þess að ásóknin hjá stelpunum á þessar æfingar verði betri. Ég veit það að einhverjum fannst tíminn 14:00-15:30 á sunnudegi vera helst til seint um daginn, margir farnir að bardúsa eitthvað annað svona langt liðið á daginn, osfrv. Ég hvet ykkur foreldra til að vera dugleg við að drífa stelpurnar á þessar æfingar.

Engin ummæli: