mánudagur, mars 05, 2007

Frábærir leikir við FH

Leikirnir við FH á laugardaginn í Víðistaðaskóla tókust mjög vel. Yngra árið spilaði 4 leiki og unnu 3 og töpuðu einum. Leikirnir fóru 1-0, 4-0, 0-1 og 8-1. Stelpurnar fóru einfaldlega á kostum og sýndu virkilega hvað í þeim býr. Í þriðja leiknum var komin smá þreyta í stelpurnar en í síðasta leiknum spýttu þær í lófana og brilleruðu algjörlega. Ef ég var einhvern tímann farinn að efast um að það væri fótbolti í þessum stelpum þá er sá efi algjör horfinn. Nú er bara að galdra þennan sama eldmóð fram á æfingunum og þá verða engin takmörk fyrir því hvað við getum gert.

Eldra árið náði ekki jafn góðum úrslitum úr leikjunum en spilaði engu að síður mjög vel. Eitt jafntefli og 3 naum töp varð niðurstaðan. Það vantaði þó nokkuð af stelpum en það má bæta því við að á meðan það mættu bara 8-9 stelpur í hvorum árgangi hjá okkur þá voru FH-stelpurnar 12-15 í báðum árgöngum og gátu því skipt alveg um lið á milli leikja á meðan sama liðið með nokkrum skiptimönnum spilaði alla leikina hjá okkur. Ég tel að úthaldslega hafi stelpurnar fengið jafnmikið út úr þessum leikjum og þær fá úr þremur venjulegum æfingum. Þess vegna verður þetta endurtekið brátt.

Ég sá að Bryndís, mamma Brynhildar, var með myndavél á leikjunum. Ef þú Bryndís, eða einhverjir aðrir, eigið nokkrar góðar myndir af leikjunum þá megið þið endilega senda mér þær.

Varðandi hvaða mót verður farið á í sumar þá kemur á næstu dögum frétt um þau mál. Það er komið upp spurningamerki við eitt af mótunum sem ég var búinn að tilkynna að yrði farið á í sumar. Ég kem með sólarsöguna þegar öll atriði í kringum þetta eru komin á hreint.

Engin ummæli: