fimmtudagur, mars 22, 2007

Fréttir

Sælt veri fólkið
Ég vill byrja á því að þakka góð viðbrögð við ósk minni um að allir foreldrar myndu skrá netfangið sitt á þessari síðu og fá þar með þessar bloggfærslur sendar til sín samdægurs á netfangið sitt. Tæplega 30 netföng eru komin á skrá, sem er flott, en þýðir samt að einhverjir eiga enn eftir að skrá sig. Ef þú ert "bara" að lesa þennan texta á heimasíðu flokksins, en ekki á tölvupóstinum hjá þér, þá ættir þú endilega að fikra þig aðeins neðar á síðuna og skrá netfangið þitt í viðeigandi dálki í valmyndinni hérna til hægri.

Á mánudaginn næsta, 26. mars, verður æfingaleikur við Álftanes á æfingatímanum okkar í Risanum. 5.flokkur kvenna, sem venjulega hefur verið með annan helminginn í Risanum, verður ekki á staðnum og því spilum við á 2 völlum samtímis. Ég hvet alla foreldra til að koma og hvetja stelpurnar.

Síðan þarf ég að tilkynna eina breytingu á mótaplani sumarsins. Það kom á daginn að mótið á Sauðárkróki sem ég hafði fyrirhugað að taka alla flokkana mína á er að mestu hugsað fyrir strákaflokka - stelpur mega taka þátt í blönduðum liðum eða í C- eða D- liða keppni strákanna, en það er ekki spennandi kostur að mínu mati. Í staðinn förum við því á mótið á Siglufirði, sem er haldið sömu helgi og mótið á Sauðárkróki átti að vera. Breytingin er að því leytinu ekki stórkostleg.
Mótaplanið fyrir sumarið 2007 er því eftirfarandi:

- Eitt vormót hér í bænum sem tekur bara einn dag. Líklegustu kandídatarnir eru KFC mótið hjá Víkingi Reykjavík sem verður haldið 6. maí, og Landsbankamót Aftureldingar sem er haldið 2-3. júní.

- Hnátumót KSÍ. Vísir að Íslandsmóti fyrir þennan aldursflokk. Keppt er um einhverja helgi seinnipart júní eða byrjun júlí. KSÍ er ekki búið að festa niður dagsetningu fyrir mótið. Ef riðillinn vinnst þá býður liðsins úrslitakeppni sem fer fram seinni partinn í ágúst.

- Símamót Breiðabliks. Verður haldið 12.-15. júlí. Stórt og flott mót í bænum.

- Pæjumót KS. Verður haldið 10.-12. ágúst. Haukar hafa til fjölmargra ára sent lið á þetta mót með mjög góðri reynslu.

Að lokum langar mig að bæta því við að ef einhverjir hafa verið að reyna hringja í mig eða senda mér sms sl. daga þá hefur ekkert af því komist til skila þar sem síminn minn er búinn að vera í ólagi. En það á að vera komið í lag núna.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

I agree with many points. But in some areas, I feel we need to be more aggressive. Just my opinion. Love ya. wedding jackets for the bride Suit Louboutin Shoes Christian Louboutin Pumps Bridal Dresses