miðvikudagur, júní 20, 2007

Hnátumót 6.fl.kvk

Laugardaginn 7. júli fer fram Hnátumót KSÍ, sem er eins konar undanfari Íslandsmóts, á ÍR-vellinum. Það eru 2 lið send til keppni og mér þætti vænt um það að sem flestir foreldrar myndu kanna við fyrsta tækifæri hvort stelpurnar séu til taks þessa helgi og láta mig vita sem fyrst. Það eru jú margir í fríum þessar sumarhelgar en ég vona að ég þurfi ekki að bíða eftir svörum frá foreldrum fram á síðustu stundu um það hvort stelpan mæti. Sendið mér endilega tölvupóst eða sms með svari. Ég mun að auki senda skráningarmiða á stelpurnar á æfingum, svona til að ýta aðeins við þeim sem lesa ekki þetta blogg.

Svona lítur leikjaplanið út:

Leikdagur Kl Mót Völlur Heimalið Gestir
1 lau. 07. júl 10:00 Hnátumót A-lið C ÍR-völlur Haukar Stjarnan
2 lau. 07. júl 10:30 Hnátumót B-lið C ÍR-völlur Haukar Stjarnan
3 lau. 07. júl 11:00 Hnátumót A-lið C ÍR-völlur Víkingur R. Haukar
4 lau. 07. júl 11:30 Hnátumót B-lið C ÍR-völlur Víkingur R. Haukar
5 lau. 07. júl 12:00 Hnátumót A-lið C ÍR-völlur Haukar ÍR
6 lau. 07. júl 12:30 Hnátumót B-lið C ÍR-völlur Haukar ÍR
7 lau. 07. júl 14:00 Hnátumót A-lið C ÍR-völlur Snæfellsnes Haukar
8 lau. 07. júl 14:30 Hnátumót B-lið C ÍR-völlur Snæfellsnes Haukar

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæhæ Kristján ég er búin að vera í new york og ég kom bara í gær bara láta vita :)

Nafnlaus sagði...

Sæll Kristján

Elma verður ekki heima þessa viku. Hún er stödd í Ólafsvík og mun mæta á æfingar hjá Víking Ó. Hún kemur heim á föstudaginn

kv Hemmi