mánudagur, júlí 09, 2007

Næsta stopp ... Pæjumótið á Sigló!

Eins og einhverjir hafa áttað sig á þá verður ekki farið á Símamótið hjá Breiðablik. Ákvörðunin var tekin í samráði við foreldrastjórnina. Ástæðurnar fyrir þessari ákvörðun voru þó nokkrar, en fyrst og fremst dræm mætingasókn í byrjun júní (þegar ég átti að fara að greiða staðfestingargjaldið á Símamótið) og dræm viðbrögð við skráningum á Hnátumótið sem fór fram sl. helg (og vildi svo til að lenti á nánast sama tíma og Símamótið er á). Ég taldi það því alveg nóg að fara á eitt mót í júlí þar sem sumarfrí og annað virðist vera að setja stórt strik í reikninginn hjá okkur þessa dagana. Vissulega hefði ég átt að tilkynna þetta foreldrum fyrr og verð bara að taka á mig sökina fyrir það.

Næsti stóri viðburður hjá flokknum er því Pæjumótið á Siglufirði sem byrjar föstudaginn 10. ágúst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:00 sunnudaginn 12. ágúst. Ég er byrjaður að dreifa skráningarmiðum til stelpnanna sem ég vona að ég fái útfyllta, með 2000 kr. staðfestingargjaldinu, sem fyrst. Mótsgjaldið er 8.000 krónur á keppanda. Það á enn eftir að taka ákvörðun um það hvort farið verður á einkabílum líkt og í fyrra, eða rúta leigð. Foreldrar mega endilega tjá mér skoðun sína á því hvort þau telji betri kostinn. Ef rúta verður tekin, þá má reikna með þeim kostnaði ofan á mótsgjaldið ásamt einhverjum matarkostnaði.

Nánari upplýsingar og endanlegt gjald fyrir mótið mun liggja bráðlega fyrir.

Krækja á heimasíða Pæjumótsins

Engin ummæli: