Þá er komið að því að eldra árið gangi upp í 5. flokk og nýjar stelpur koma upp úr 7.flokk. Ný æfingatafla tekur gildi á morgun, 3. september, og nýr þjálfari hefur verið ráðinn til starfa: Svava Björnsdóttir.
Svava er 24 ára gömul og var mín hægri hönd í sumar, stjórnaði mörgum æfingum, kom með á mótin og fór með til Siglufjarðar. Svava þjálfaði 5. flokk kvenna fyrir nokkrum árum og hóf að leika með meistaraflokk kvenna hjá Haukum fyrir tæpum áratug . Svava verður þó frá æfingum í þó nokkurn tíma vegna hnéaðgerðar sem hún þurfti nýlega að fara í, svo hún ætti að geta einbeitt sér vel að þjálfuninni. Svava mun ljúka að ná sér í tilskilin þjálfararéttindi í október og fram að þeim tíma (og líklega eitthvað aðeins lengur :) mun ég aðstoða hana við að gera kennsluáætlanir til skemmri og lengri tíma og vera henni innan handar á allan hátt.
6.flokkur kvenna æfir í framhaldinu á:

- þriðjudögum kl. 17-18 úti á Ásvöllum
- fimmtudögum kl. 17-18 úti á Ásvöllum
- mánudögum kl. 17-18 í Risanum á Kaplakrika (tekur gildi 1. október)
Það eru sem sagt tvær æfingar í viku í september og sú þriðja bætist við í október.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli