þriðjudagur, október 16, 2007

Foreldrafundur

Foreldrafundur hjá 6.flokk kvenna verður haldinn kl. 18:00 fimmtudaginn 25.október á 2.hæðinni í íþróttahúsinu á Ásvöllum. Fundur tekur vonandi ekki mikið meira en hálftíma, en dagskrá fundarins verður í grófum dráttum þessi:

1. Fulltrúi barna og unglingaráðs setur fundinn. Óskað eftir fólki í foreldrastjórn. Tekið á móti iðkendaskráningablöðum.
2. Kynning á þjálfara og starfinu framundan. Þjálfari situr fyrir svörum.
3. Fulltrúi barna og unglingaráðs gengur frá stofnun foreldrastjórnar, svarar
spurningum og fl.
4. Fundi slitið og foreldrastjórn tekur til starfa.

Ég vona að sem flestir foreldrar og forráðamenn mæti.

Kv. Svava

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hver verður þjálfari stelpnanna?

Nafnlaus sagði...

Svava Björnsdóttir