Í dag verður vinkonu-æfing hjá okkur. Allar stelpur geta komið með eina vinkonu og æfingin verður eitthvað öðruvísi en venjulega. Smá fótbolti og sprell og vonandi skila einhverjar af "vinkonunum" sér aftur á æfingu, það yrði frábært. Hálf seint að blogga um þetta núna en ákvað að setja þetta inn núna með, þær eru allar búnar að fá miða um þetta á síðustu æfingum.
Við erum komnar með fasta aðstoðarþjálfara. Það hafa verið að koma mismunandi aðstoðarþjálfarar núna fyrir jól, en mér fannst þess ekki alltaf þurfa þar sem mætingin var svo slök og taldi ég mig ráða vel við þetta. En núna eru stelpurnar farnar að vera duglegri að mæta og vonandi verður það áfram þannig. Þessvegna er það komið fast að hann Nonni verður alltaf með okkur á mánudögum og Þórir verður alltaf með okkur á þriðjudögum og fimmtudögum. Báðir eru þetta strákar sem spila með Haukum og eru 18-19 ára. Mjög ljúfir og góðir báðir og ná vel til stelpnanna. Læt símanúmerin hjá þeim fylgja með ef einhverjir foreldrar þurfa að ná á þá.
Nonni : 663-3833 og Þórir : 6954493
KV. Svava þjálfari (698-8329)
fimmtudagur, janúar 31, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli