Nokkur atriði sem mig langar að minna á
- Koma vel klæddar á allar æfingar
- Koma á réttum tíma á æfingar
- Láta vita þegar stelpurnar komast ekki á æfingar
- og um fram allt að vera duglegar að mæta!!!
Nú styttist í að við förum í Vogana yfir nótt og þá verða það einungis stelpurnar sem eru búnar að mæta 70 % og betur sem fá að fara, þannig að um að gera vera dulegar að mæta því enginn vill missa af því.
Er ekki komin með nákvæma dagsetningu en það fer að koma, en planið er að fara um helgi í íþróttarhúsið í Vogunum og gista þar eina nótt saman. Yngri flokkar Hauka hafa verið að fara í svona ferðir og vakið mikla lukku. Höfum aðgang að sundlauginni, íþróttasalnum til að leika okkur í fótbolta, fara í tarsanleik og raun allt sem við viljum gera. Síðan verður pöntuð pítsa og horft á einhverja skemmtilega bíómynd saman. Skemmtileg ferð til að þjappa hópnum saman og ná að kynnast allar betur.
Endilega hafið samband ef eitthvað er!!
Kv. Svava þjálfari (6988329)
1 ummæli:
Hvenær er þessi ferð fyrirhugðuð?
Kveðja, Rósa (mamma hennar Kötlu)
Skrifa ummæli