mánudagur, febrúar 11, 2008

Vogaferðin

Jæja nú styttist í Vogaferðina okkar. Farið verður á föstudaginn næsta og aftur heim á laugardaginn. Í dag sendi ég stelpurnar heim með tvö miða, annar er tjekklisti um hvað þarf að vera með í för og á hitt er staðfestingarblað um hvort viðkomandi komi ekki örugglega með í ferðina. Á sama blaði er óskað eftir foreldrum til að keyra og sækja okkur. Frábært ef einhverjir geta það, ekki nema korter keyrsla og já við komumst auðvitað ekki án þess að vera keyrðar þannig að það yrði meira en frábært. Endilega skila blaðinu til mín aftur strax á morgun þriðjudag eða á fimmtudag í síðasta lagi.

Ferðin kostar 2500 kr, bið ég alla að millifæra á mig sem fyrst inná reikning 1101-26-36113, kt 200683-4639. Muna að hafa nafn stelpunnar með.

Stelpurnar þurfa að hafa með sér:

  • svefnpoka/sæng og kodda. Dýnur eru á staðnum en öllum frjálst að koma með vindæng eða eitthvað annað þægilegra.
  • náttföt
  • stuttbuxur, bol, sokka og innanhússkó.
  • sundföt og handklæði
  • snyrtivörur (tannbursta og tannkrem, sjampo og bursta)
  • morgunmat (t.d brauð, jógurt og drykk)

Ef það eru einhverjar spurningar þá endilega hafið samband í síma 6988329

Kv. Svava

Engin ummæli: