Ég hef verið að velta því fyrir mér í nokkurn tíma með að fá ykkur foreldra með mér í samstarf. Samstarf til að virkja stelpurnar í fótboltanum. Núna í vetur hefur mætingin ekki verið nógu góð, ég hef reynt að breyta æfingaplaninu, gera það minna krefjandi og meiri skemmtun í þeirri von að stelpurnar skili sér allar á næstu æfingu. En allt kom fyrir ekkert. Það er leiðinleg staðreynd en oft sýna foreldrar ekki íþróttaiðkun dætra sinna, á borð við fótbolta, ekki mikinn áhuga. Ég er alls ekki að segja allir foreldrar en hjá mörgum. Í sama aldursflokki hjá strákum er mætingin miklu betri. Og það eru foreldrar sem hafa áhrif, hvort krakkarnir séu keyrð á æfingar, hvattir til að fara á æfingar, foreldrar mæta og horfa á eða hvort ástæða einsog að barnið sé að leika við vin/vinkonu sem er ekki að æfa sé nógu góð til að sleppa æfingu.
Þessar pælingar hafa blundað í mér núna í smá tíma, sérstaklega eftir tapið á móti FH á síðasta mánudag. Ég sá að það voru ansi margar súrar á svip og foreldri tjáði mér að dóttir þeirra sagðist vera hætt í fótbolta eftir leikinn, en kom sem betur fer svo á næstu æfingu :) En þetta er bara svo skiljanlegt, það er alltaf leiðinlegt að tapa. Það sem ég var kannski mest súr yfir er að með allan mannskapinn okkar hefðum við unnið þær, ég er alveg viss um það. En um 10 stelpur mættu ekki í leikinn og létu ekki vita. Þegar leikurinn átti að byrja náðum við ekki einusinni í 2 lið.
Þannig að ég leita nú til ykkar kæru foreldrar til að hjálpa mér að virka stelpurnar. Fótbolti snýst um að hafa gaman og að ná árangri er rosalega gaman. Þetta er mjög skemmtilegur hópur og stelpurnar virðast allar ná vel saman. Það eru margar svo ótrúlega efnilegar stelpur í flokknum, þvílíkir gullmolar og snillingar sem þessar stelpur eru og ég veit að ef við leggjum okkur öll fram núna getum við náð góðum árangri og haft rosalega gaman af því.
Með Haukakveðju
Svava
fimmtudagur, mars 06, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Sæl
Fyrst langar mig að hrósa þessum 6. flokks stelpum fyrir að stunda æfingar 2svar sinnum í viku úti í vetur í þessu veðri
sem hefur verið ríkjandi. Ég held að það gera sér fáir grein fyrir því að það tekur á að vera kannski blautur í fæturna
í klukkutíma svona sjálfviljugur. Ef félagið getur ekki skaffað þessum ungu stelpum betri æfingaaðstöðu þá verður víst
að vera svo.
Dóttir mín var einnig komin með einhvern fótboltaleiða og ætlaði að hætta en henni snerist hugur eftir að hafa horft á
'Bend it like Beckham'.
Mín skoðun:
Ég held að stelpurnar séu orðnar nógu gamlar til að læra mannganginn. Mér hefur fundist bæði í leikjum og á þeim æfingum
sem ég hef fylgst með að þær viti ekki alveg hvernig þær eiga að snúa.
Ég varð mjög undrandi að sjá ekki annan eða báða strákana sem voru ráðnir sem aðstoðarþjálfarar upp í Risa um daginn.
Eins þegar við tókum þátt í mótinu í Kópavogi. Þegar það eru 2 lið þá þarf amk að hafa tvo þjálfara og þá einhvern sem
þær þekkja. Annað er rugl og endar ávalt þannig að það eru 7 stelpur hlaupandi í sitt hvora áttina og jafnvel 14
foreldrar kallandi misgáfulegar leiðbeiningar inn á í einu ;)
Stelpurnar eru frekar áhrifagjarnar og það væri kannski hugmynd að hafa gestaþjálfara á einhverjum æfingum, td.
landsliðskonuna okkar. Hægt væri að eyða einni eða fleiri útiæfingum í innikennslu þar sem væri farið yfir leikinn og
leikaðferðir. Á KSÍ ekki einhver kennslumyndbönd fyrir yngra liðið?
Legg einnig til að Haukarnir splæsi í markmanns(stelpu)hanska til að gera það embætti safaríkara. Einnig mættu
treyjurnar vera í hentugri stærðum því að smáatriðin skipta líka miklu máli.
Á þessum aldri er fótbolti ekki lengur bara leikur. Það þarf að ala grimmdina upp í stelpunum.
Svo á þetta kannski bara eftir að koma líkt og gerðist á mótinu í fyrra í Mosó.
En ég vona svo sannarlega að það fari að koma vor með sól í heiði.
Áfram Haukar
-Garðar, Kötlupabbi
Hæ öllsömul,
Ég tek undir með Garðari hvað varðar dugnað stelpnanna að æfa svona úti allan veturinn, reyndar kemst mín dóttir aldrei á fimmtudagsæfingar þar sem þær eru kl 16.00 og ég ekki verið það greiðfært í vetur að hún geti hjólað þetta úr gamla Vesturbænum :)
Þá tek ég einnig undir að mér kom eiginlega á óvart á mótinu í Kópó að mér finnst þeim ekki hafa farið fram hvað varðar leikskilning, og held að þurfi að gera gangskör í því að vinna í því fyrir sumarið. Finnst þetta frábær hugmynd með að athuga með kennsluvideó hjá KSÍ!
Hvað varðar mætingasóknina, þá er það auðvitað okkar foreldranna að sjá til þess að þær stundi þær, en ég held að það væri ekki vitlaust að taka upp það sem Hildur gerði í 7 fl. að taka saman æfingasókn hvers mánaðar og vera með farandmætingabikar sem sú/þær sem vinna fá að geyma í allt að 1 mánuð. Ég man að þetta fannst minni dóttur mjööööög verðugur bikar að reyna að vinna! Það finnst jú öllum gaman að vinna e-ð, þó það sé bara tímabundið. Þá finnst mér líka athugandi að endurskoða þá tilhögun að verðlauna ekki þá sem standa sig best eða sýna mestu framfarir, prúðust á velli eða eitthvað á þeim nótum á uppskeruhátíðum að hausti, ég held satt að segja að það sé hvetjandi, þó það geti verið skiptar skoðanir um það. Hvað hugsar leikmaður sem ekki fær svoleiðis viðurkenningu...reynir hann ekki að vinna til hennar næsta ár á eftir??
En allavega...sá ekki auglýsingu um fund knattspyrnudeildar í kvöld fyrr en núna þegar hann er sennilega afstaðinn, en ef vill og enginn hefur boðið sig fram er ég jafnvel til í að halda við að einhverju leiti og skrifa/setja inn myndir um flokkinn á heimasíðu 6 flokks í sumar.
Magga Braga...mamma Karenar Ósk
Skrifa ummæli