Það eru komnar dagsetningar á Símamótið og Pæjumótið á Siglufirði. Þetta eru svona einu stóru mótin sem haldin eru fyrir 6 flokk í sumar. Einnig er ein helgi þar sem Hnátumótið er (íslandsmótið) en KSÍ er ekki búið að setja dagsetningu á það. En ákvað að skella þessu dagsetningum hérna inn svo fólk geti haft þetta bakvið eyrað þegar sumarfríin verða plönuð.
Símamót Breiðabliks verður haldið dagana 10 júlí til 13 júlí
Pæjumótið á Siglufirði verður haldið 8 ágúst til 10 ágúst.
Annars verður foreldrafundur núna fljótlega þar sem ég ætla að leggja það undir ykkur hvort við eigum að vera að fara á bæði þessu mót. Flokkurinn fór ekki á Símamótið í fyrra, þar sem þessi bæði mót eru dýr og mótið á Siglufirði er miklu meiri upplifun og skemmun þar sem við erum allar saman. En á Símamótinu sé ég ekki ástæðu fyrir að vera að borga dýra gistingu og mat þegar fólk býr 10 mín frá. Löng bið á milli leikja og fleirra sem mér finnst allavega gera þetta mót ekki eins skemmtilegt. En einsog ég segi þá verður þetta bara tekið upp á foreldradundi sem kemur meira um síðar.
Kv. Svava
mánudagur, mars 17, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli