miðvikudagur, maí 21, 2008

Mót sumarsins ....og annað

Á foreldrarfundi í lok apríl var ákveðið að fara á eftirfarandi mót:

Landsbankamót Aftureldingar 1. júní

Bónusmót Þróttar 8. júní

Pæjumót TM á Siglufirði 8 - 10 ágúst

Einnig verður keppt á Hnátumóti KSÍ (Íslandsmót) sem ekki er komin dagsetning á.

Eftir umræðuna sem átti sér stað á foreldrafundinum um hvort við ættum að fara á Siglufjörð eða Sauðárkrók, athugaði ég með 5 flokk og 7 flokk og hvorugur flokkanna ætlar á Siglufjörð. 7 flokkur ætlar ekki á neitt stórt mót líkt þessum mótum og 5 flokkur ætlar á Sauðárkrók.
Miðað við þá foreldra sem komu á fundinn voru mun fleirri sem sögðust komast á Siglufjörð en Sauðarkrók þannig ég hef tekið þá ákvörðun að við förum á Pæjumótið á Sigló.
Þó svo það verði ekki aðrir flokkar úr Haukum þýðir ekki að við getum ekki skapað okkar stemmningu og gert þessa ferð eftirminnilega fyrir stelpurnar. Til þess verðum við öll að vinna saman að því markmiði.

Varðandi samskipti milli foreldra og þjálfara þá hef ég 95 % tilvika sent miða heim sé eitthvað sem þarf að komast áleiðis til foreldra, hef ekki náð því hafi verið of stuttur fyrirvari eða annað tilfallandi. Þær upplýsingar sem eru á miðunum koma líka hérna inn og oftast nánari upplýsingar hér á síðunni. Ég hef alltaf tekið fram slóðina á þessa heimasíðu líka á miðunum. En það hefur ekki verið 100 % mæting í vetur og þar af leiðandi ekki allir miðar komist heim. Þessvegna var ég búin að taka fram á foreldrafundum að foreldrar þyrftu að vera duglegir að kíkja inná síðuna og svo sagði ég frá því að það væri hægt að skrá emailið sitt hérna hægra megin þannig að hægt væri að fá sent mail þegar nýjar færslur kæmu hérna inn.
Ég hefði haldið að miðar og heimasíða ættu að duga til að koma skilaboðum heim en ég þyrfti ekki að vera að senda sms eða annað til að ganga á eftir foreldrum. En kannski er það nauðsyn og þá geri ég það bara.

Varðandi commentakerfið hérna þá hefði ég kannski þurft að taka betur fram hvernig það virkar. Í þessum samfélagi sem við búum í þar sem allir blogga, ráðherrar sem aðrir hélt ég að allir þekktu commentakerfin. En til að útskýra það þá er fyrir neðan hverja færslu "athugasemdir" sem hægt er að klikka á og skrifa athugasemd við færluna. Passa þarf uppá að haka við "nafnlaus" svo commentið birtist. Vona að allir foreldar verði duglegir að commenta eftir þetta ;)

Ef eitthvað er endilega hafa samband við mig í síma 698-8329

Vona að sumarið verði frábært hjá okkur :)
Kv. Svava

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég vona líka að sumarið verði frábært=D