laugardagur, júní 07, 2008

Fótboltahátíð Þróttar (Bónusmótið)

Leikjaplanið fyrir morgundaginn er komið inn hér fyrir neðan. Þróttarar vilja samt að þetta verði bara haft til hliðsjónar, margt geti breyst og því fáum við lokaútgáfu á leikjaniðurröðinni á morgun.

Pítsuveisla verður svo eftir keppnina auk myndataka, verðlaunaafhending og skemmtiatriði. Vil benda öllum á að koma með hollt og gott nesti til að fá sér milli leikja. Muna að hafa með vatnsbrúsa! Ég kem með keppnistreyjur en stelpurnar verða að vera klæddar eftir veðri. Var með 7 flokk í dag og það ringdi ansi duglega og margar voru orðnar ansi kaldar í lokin.

Skráning var ekki mikil í þetta mót og svo eru nokkrar búnar að afboða sig núna á síðustu stundu þannig að ég boða allar að mæta á morgun, hvort sem þær hafi skráð sig eða ekki. Vona að við náum í lið allavega. Keppnisgjald er 1500 kr fyrir hverja stelpu.

Ef það eru einhverjar spurningar endilega hafið samband í síma 698-8329, hvort sem það verði í kvöld eða á morgun.

Vonast til að sjá sem flestar á morgun.
Kv. Svava

Engin ummæli: