Við spiluðum á Hnátumótinu í gær og okkur gekk nokkuð vel. Mættu 18 stelpur, ótrúlega ánægð með þessa mætingu. Auðvitað varð það til þess að allar fengu verkefni við hæfi og úrslit eftir því. ÍR vann riðilinn í keppni A-liða og við töpuðum rétt fyrir þeim í fyrsta leik 2-1 og hefðum klárlega getað unnið þann leik. ÍR er búið að vera með mjög sterkan 6 flokk lengi og þetta því frábær úrslit. töpuðum einnig rétt fyrir Aftureldingu og Grindavík og bæði þessi lið eru líka með mjög góð lið og tóku okkur í bakaríið um daginn. A-liðið endaði svo á að vinna Fram örugglega.
B-liðið endaði í 2 sæti með 3 sigra og eitt ansi naum tap 3-2 gegn Grindavík.
Hringdi einn foreldri í mig í morgun og sagði að útiæfingarnar í vetur hefðu sko klárlega skilað sínu því í síðasta leik kom víst skelfilegt veður og mótherjarnir nánast farnar að skæla en þá létu Haukastelpurnar einsog ekkert væri og rúlluðu leiknum upp...frábær :)
Ég náði því miður ekki að vera með þeim allt mótið, var sjálf að fara að keppa. En er búin að heyra að það hafi verið mikil barátta og stelpurnar hafi oft verið að spila flottan fótbolta og allar lagt sig fram. Þannig að ég er gríðarlega stolt af stelpunum.
Nú höldum við bara áfram að vera dulegar að mæta á æfingar og leggjjum okkur fram og komum enn betri í næsta mót, sem er einmitt Pæjumótið á Siglufirði :)
miðvikudagur, júlí 02, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli