Ég hef ákveðið að hafa smá sumarfrí hjá stelpunum. Flest allir yngri flokkarnir voru búnir að hafa frí, en ég bara vissi hreinlega ekki af því fyrr en í lok síðustu viku. Það verður samt æfing núna mánudag 21 júlí og þriðjudag 22 júlí og tökum okkur svo frí í eina og hálfa viku og mætum aftur á æfingu á þriðjudaginn 5 ágúst, síðan er það Siglufjörður helgina á eftir.
Minni á foreldrafundinn sem verður 23. júlí vegna Siglufjarðarferðarinnar. Mjög mikilvægt að foreldrar þeirra stelpna sem ætla með komi á fundinn. Að gefnu tilefni verð ég því miður að segja að þær sem voru ekki búnar að skrá sig fyrir 10 júlí einsog ég var búin að auglýsa komast ekki með. Ég varð að skrá okkur og gefa upp hveru margar kæmu. Einhverjar foreldrar vissi ég ætluðu að bíða og sjá til og því miður er það bara orðið of seint...
Semsagt sumarfrí frá fótboltaæfingum 23 júlí - 4 ágúst.
mánudagur, júlí 21, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Varðandi ferðina á pæjumótið-
Ég er búinn að fá loforð fyrir pylsum og áleggi frá Ali. Líka einn kassa eða 24 stk af Svala, ég var á fundi hjá Vífilfelli í morgun og notaði tækifærið eftir fundinn og bað sölustjórann um drykki. Kveðja Jónas(pabbi Helenu.)
Vel af sér vikið Jónas, ég sendi styrkbeiðni til Vífilfells og þeir vildu selja okkur svala á 15 kr. greinilega komin kreppa hjá þeim líka ;)
Kveðja, Rósa (mamma hennar Kötlu).
Hvar á að leggja inn þátttökugjaldið ?
Skrifa ummæli