föstudagur, nóvember 07, 2008

ATH. vel breyttur æfingatími!

Jæja stelpur nú er farið að kólna og við höfum fengið æfingatíma í Kórnum í Kópavogi, en það er upphitað hús með gervigrasvelli. Æfingin sem var á fimmtudögum færist því yfir á sunnudaga kl.14.30-15.30 eins og sést hér til hliðar. Endilega hafið samband við aðrar stelpur í flokknum og látið foreldra ykkar skiptast á að keyra ykkur.

Látið þetta berast til allra!!! En sms verða líka send. Ef að einhver hefur ekki fengið sms þá er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við Hildi í tölvupóstfangið hildur(hja)hvaleyrarskoli.is

Muna að æfingin skapar meistarann, Hildur.

Engin ummæli: