laugardagur, febrúar 21, 2009

Knattspyrnuakademía Íslands

Námskeið fyrir 9-11 ára stelpur sem eru útileikmenn frá 24. feb til 24. mars
Aðaláhersla verður lögð á að þjálfa grunnþætti knattspyrnu sem skiptir miklu máli fyrir þennan aldurshóp auk þess verður farið í leiki og keppnir sem reyna á leikni með bolta. Hópnum verður skipt eftir aldri og getu til að tryggja að allir fái sem mest út úr námskeiðinu.

Æfingarnar fara fram á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum kl: 06.20 – 07:20.

Þjálfarar á námskeiðunum hjá stelpunum eru:
Lea Sif Valsdóttir
Páll Árnason
Kristrún Lilja Daðadóttir
Rakel Logadóttir.

Markmannsskóli fyrir 9 - 14 ára stráka og stelpur – 24. feb til 24. mars.
Í annað skipti býður Knattspyrnuakademían upp á sérstakan markmannsskóla þar sem Guðmundur Hreiðarsson mun hafa yfirumsjón auk þess sem markmenn úr Landsbankadeild koma í heimsókn.

Æfingarnar verða á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum kl: 06.20 – 07.20.

Allir þátttakendur á þessum námskeiðum fá æfingaföt KAÍ sem inniheldur treyju, stuttbuxur og fótboltasokka.

Þátttökugjald á öllum námskeiðin er 15.000 kr. með morgunhressingu.

Skráning á námskeiðin fer fram á netfanginu: korinn@simnet.is <mailto:korinn@simnet.is>

Engin ummæli: