Kæru foreldrar
Knattspyrnudeild Hauka er að gera breytingar á uppbyggingu þjálfunar yngri flokka stelpna hjá félaginu.
Þórarinn Engilbertsson (Tóti) verður yfirþjálfari stelpnaflokka, frá 3. flokki niður í 8. flokk. Hann mun sjá um samræmingu þjálfunar og gæta þess að þjálfun sé í samræmi við íþróttanámskrá. Samhliða mun hann einnig sjá um markaðssetningu yngri flokka stelpna. Barna og unglingaráð er einnig með í vinnslu að ná betri tengingu yngri flokka við meistaraflokka félagsins og Tóti mun vinna í því máli með barna og unglingaráði.
Samhliða þessu verða breytingar á þjálfunarmálum 6. flokks kvenna, þannig að Þórarinn hættir sem þjálfari 6. flokks kvenna, og í stað hans mun Ragnheiður Berg verða þjálfari ásamt Hildi Loftsdóttur sem hefur verið þjálfari með Þórarni. Ragnheiður og Hildur munu einnig þjálfa 7. flokk kvenna. Þórarinn mun áfram þjálfa 3, 4. og 5. flokk kvenna.
Þórarinn mun hins vegar hafa yfirsýn yfir starfið í öllum kvennaflokkunum. Einnig er gert ráð fyrir þeim möguleika að valdar stelpur eigi kost á að æfa með 5. flokki kvenna.
Hildi Loftsdóttir er óþarfi að kynna en eins og þið vitið hefur Hildur þjálfað hjá Haukum í nokkur ár við góðan orðstýr. Þessar stelpur voru allar hjá Hildi þannig að hún þekkir þær og þær hana. Ragga hefur verið að aðstoða Hildi með 7. flokkinn einnig þjálfaði hún hjá félaginu fyrir tveimur árum.
f.h. knattspyrnudeildar
Guðbjörg Norðfjörð Íþróttastjóri Hauka
sunnudagur, mars 01, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli