Kæru foreldrar !
Við höfum fengið borð í Firðinum 17.april ´09 eftir hádegi fyrir kökubasar.
Nú þurfum við að fá duglega pabba og mömmur til að baka og einnig til að vera á staðnum, t.d frá 13-14 , 14-15, þangað til allar kökur eru búnar. Auðvitað sjá stelpurnar um þetta en við þurfum samt að hafa einhverja með þeim. Ef að viðbrögðin verða dræm við þessu þá afpöntum við borðið. Hagnaðurinn deilist niður á þá sem að koma með köku.
Vinsamlegast skráið ykkur hér fyrir neðan þ.e.a.s hvort að þið komið með köku og á hvaða tíma þið getið verið í sölu.
Annað mál ….. á föstudaginn 27.03.09 verður síðasti séns að skrá magn af lakkrís , sjá neðar .
Nóg í bili ……….. kveðja foreldrastjórn
miðvikudagur, mars 25, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
24 ummæli:
Við getum bakað - það er ekkert mál. Ættum að geta hjálpað til á staðnum svona upp úr kl. 15.
Kveðja,
Helga mamma Rakelar Óskar.
Við getum bakað - bara gaman af því (-:. Getum hjálpað til eftir kl. 14:00
Betra að skrifa undir, Guðbjörg mamma Gyðu Maríu.
Við getum komið með kökur, verða ekki að vera tvær kökur eða sambærilegt á stelpu ? Veit ekki hvot við getum verið á svæðinu. Kveðja, Rósa (mamma hennar Kötlu).
Við getum bakað, ekki víst að foreldrarnir geti verið á staðnum en Gugga ætti að geta mætt
kv. Anna og Gugga
Við getum bakað en ég veit ekki hvort við komust í söluna en það kemur í ljós þegar nær dregur
kv Særún mamma Þórdísar Elvu:)
Hæ
Borðið kostar 5000 þannig að við skulum kannski ákv. kökufjöldann
1-2 þegar við sjáum hve margar ætla að taka þátt og hvort að við náum að manna daginn !!Við erum ekkert að tala um að vera allan daginn bara að taka t.d 1 klst. þó svo að skotturnar okkar verði áfram.
Kv. Kristín Alexöndru mamma
við ætlum að baka og við ætlum að selja 20 lakkríspoka
kveðja,
Elfa mamma hennar Áslaugar Mörtu
Við getum bakað og verið eitthvað á staðnum á þeim degi:)
Kveðja,
Inga (mamma Eydísar)
Við Katrín getum bakað og verið komnar ca kl.13.30. kv Lizy
Við getum bakað en ekki verið á staðnum, kemst ekki frá vinnu.
Kveðja
Krissa mamma Lilju og Sóleyjar
hæ,Vera hér, ég ætla að selja 10 lakkrís poka með mömmu Írisi og mörthu frænku,Kveðja Vera...
Alma (nýliði) kemur með kökur. Ég (mamman) get verið frá 14-15 á staðnum.
Kveðja,
Arndís mamma Ölmu
Við getum bakað en ekki verið á staðnum fyrr en eftir kl 15:00.
Viljum gjarnan vera með.
kv
Margrét og Þórir foreldrar Yrsu Rósar
... og með lakkrísinn ef við erum ekki of sein þá viljum við taka 10 poka
kv
Þórir (Yrsa Rós)
Andrea Anna mætir með kökur! og við getum komið kl 14.. kv Ester
Við bökum köku og get komið og hjálpað til um kl 13
Soffía mamma Thelmu
Við ætlum að baka og selja 18 lakkríspoka :)
Er ekki viss með að geta verið með henni í Firðinum en hún getur verið sjálf. Svara síðar hvort ég komist með.
kv.
Iða - mamma Elmu Mekkínar
Hæ
við getum bakað ..:-)
Ágústa , mamma Sunnu Lífar.
Hæ, hæ Katla var svo dugleg að selja lakkrís svo okkur vantar 3 poka í viðbót. Vonandi gengur það upp :) Kveðja, Rósa og Katla
Sigrún Birna við getum komið kl 13 pabbi eða mamma verða með við getum bakað líka (bara gaman)
Skrifa ummæli