Jæja nú förum við í skemmtiferð í Vogana þ.e.a.s. helgina 25.-26.apríl. Við munum hittast á Ásvöllum og safna okkur saman í bíla. Leggjum af stað kl.13.00 og komum til baka á sunnudeginum kl. 13.00 en þá verða foreldrar að sækja sína stelpu eða sjá um að koma henni heim með einhverjum öðrum, en láta okkur vita af því. Þeir sem vilja keyra á laugardeginum vinsamlegast bjóða sig fram með því að gera athugasemd hér á síðunni. Ferðin verður nánar auglýst síðar og þá kemur m.a. listi yfir það sem við tökum með okkur og jafnvel dagskráin líka.
Bestu kveðjur, Ragga og Hildur.
laugardagur, mars 14, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Við Steini getum keyrt (mamma og pabbi Lilju Daggar og Sóleyjar Sifjar).
Þá er reyndar bara eitt pláss laust í bílnum hehe, en við erum til í skutl.
Kveðja
Krissa
Skrifa ummæli