þriðjudagur, apríl 14, 2009

Kæru Haukaforeldrar 6.flokks stelpna.

Á föstudaginn 17 apríl ætlum við að halda kökubasarinn í Firði

Þeir foreldrar sem voru búnar að bjóða sig fram eru hér á listanum og hver stelpa kemur með 2 kökur (merkja sína köku – ef svo ólíklega vill að við seljum ekki allt). Muna að pakka þeim inn í sellófan og skrifa innihaldslýsingu og verð 2.500 kr stk.

Mikilvægt er að koma með kökurnar klukkan 13 þegar basarinn byrjar og að stelpurnar mæti í Haukabúning þær selja betur þannig.

Kl 13:00- 13.30. Lizy mamma Katrínar

Kl 13:30- 14.00. Soffía mamma Thelmu

Kl 14:00- 14:30. Arndís mamma Ölmu

Kl 14:30- 15:00 Guðbjörg mamma Gyðu Maríu.

Kl 15:00 -15:30- Ester mamma Andreu Önnu

Kl 15:30- 16;00 Margrét og Þórir foreldrar Yrsu Rósar

Kl 16:00- 16:30, Helga - mamma Rakelar óskar

Kl 16:30-17:00 Þórunn Erla mamma Dagrúnar Birtu

Kl : 17:00-17.30 Inga mamma Eydísar

Kl 17:30- vantar

Kveðja Foreldrastjórn (Þórunn, Kristín, Lizý og Símon)

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Katla er ekki búin í skólanum fyrr en 13:20 svo að ég býst ekki við að hún komi fyrr en um kl. 14.

Nafnlaus sagði...

eydís er ekki heldur búin fyrr en á þeim tíma, þannig að við komum ekki fyrr en hún kemur heim!

KVeðja Mamma Eydísar

Nafnlaus sagði...

Vildi bara benda ykkur á að það er til sellófan í Bónus (Völlum) og rúllan kostar 199 kr. Kveðja, Rósa.

Nafnlaus sagði...

Þið bara komið með kökurnar þegar þær eru búnar í skólanum,, það er alveg nóg. Það vantar listan með tímasetningunum, hann fylgdi ekki með, bið Hildi að senda hann í dag
kvÞórunn

Kristrún sagði...

Lilja og Sóley verða að afboða sig, ég kemst ekki frá vinnu til að koma með kökur. Fjórar kökur eru líka svolítið mikið hehe :)

Kveðja
Kristrún

Nafnlaus sagði...

Gugga kemur með kökur eftir skóla, um klukkan tvö.

kv. Anna og Gugga

Nafnlaus sagði...

Alexandra, Sunna Líf, Áslaug, Elma, Sigrún Birna og Þórdís koma líka með köku. Upplýsingar frá foreldrastjórninni. Kveðja, Hildur.

Nafnlaus sagði...

Sæl Kristún,,
dætur þínar geta líka alveg komið með 2 kökur en ekki 4 ef þeim langar til að vera með og þeas ef þú færð e-h til að koma með kökurnar, það má koma með þær eftir kl 13
kvÞórunn