Jæja, þá er komið að Vogaferðinni ..... :)
Við ætlum að leggja af stað frá Ásvöllum kl. 13:00 á laugardaginn, ágætt að hittast 12:50 í andyrinu á íþróttahúsinu. Ferðin kostar 2.000kr.
Það verður skemmtileg dagskrá langt fram á kvöld og við ætlum að hafa rosalega gaman !!! ;) Verið klæddar eftir veðri - við verðum aðeins úti líka.
Það sem þarf að taka með :
Nesti fyrir laugardaginn (ekki kvöldmat) og morgunmat á sunnudeginum
Laugardagsnammi max kr. 300,- + gos (þessu má að sjálfsögðu sleppa)
Dýnu, svefnpoka og kodda (eða lak og sæng)
Náttföt
Sundföt + handklæði
Innanhúsíþróttaföt
Tannbursti, tannkrem, hárbursti...
Stelpur svo megið þið endilega koma með skemmtiatriði og væri gaman ef þið væruð búnar að æfa ykkur og undirbúa e-ð skemmtilegt !!
Endilega skráið ykkur hér á heimasíðuna svo að við getum haft samband við þær stelpur sem ekki láta vita hvort þær komi eða ekki svo þessi skemmtilega ferð fari ekki framhjá neinni stelpu. Endilega látið líka vita ef þið getið skutlað eða sótt.
Kveðja
Ragga og Hildur
þriðjudagur, apríl 21, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
27 ummæli:
Hæ hæ
Viljið þið að þær skrái sig ?
Alexandra J. ætlar að koma með .
Þurfið þið enga aðstoð ? Þetta eru jú auðvitað algjörir "englar " sem þið eruð með : )
Þið látið bara heyra frá ykkur .
Kv. Kristín Alexöndru mamma
Hæ, hæ Bryndís ætlar með í Vogana.
Kv. Anna mamma Bryndísar.
Andrea Anna ætlar með í Vogaferðina. Kveðja Andrea Anna og Ester (mamma)
Áslaug Marta ætlar í Vogana
Jón Ágúst þekktur sem Ásíarpabbi
Við förum á bíl og erum með tvö laus pláss í bílnum.
Jón Ágúst betur þekktur sem Ásíarpabbi
Alma kemur í ferðina.
kv.
Arndís mamma Ölmu Ásgrímsdóttur
Svava Ósk kemur með og við getum verið á bíl og tekið 2-3 með okkur.
Kv Kristín mamma hennar Svövu.
Eydís Líf kemur með,
Kveðja,
Inga mamma Eydísar
við verðum á bíl og ég get tekið 2-3 í viðbót í bílinn:)
Kveðja,
Inga mamma Eydísar
Gugga kemur í Vogana
kv. Anna og Gugga
Magnea Dís kemur með í Vogana
Kv Sylvía og Magnea
Katla ætlar í Vogana, óvíst hvort hún gisti. Kveðja, Rósa og Katla.
Hæhæ;)þetta er hún Vera og ég kemst í vogana og við sjáumst:)hveðja Vera og íris;)
Hæ Þórdís Elva ætlar í Vogana sjáumst um helgina
kv Þórdís Elva og Særún mamma:)
Hæ hæ
Rakel ósk ætlar að koma í Vogana.
Kveðja Helga mamma Rakelar Óskar
Yrsa Rós ætlar að koma með...
kv.
Þórir pabbi Yrsu Rósar
Gyða María ætlar með í Vogana, förum í leikhús kl. 14:00 og komum eftir það, kveðja, Guðbjörg mamma Gyðu Maríu.
aaaa... væri gott ef Yrsa fengi samflot úteftir en við getum sótt og munum sækja
kv
Þórir pabbi Yrsu Rósar
aftur
hææ blerina kemur með i vogaferðina og lejla fær far framm og til baka kv. blerina og mirvet mamma blerinu.
Hvenær á að sækja svo í Vogana á Sunnudaginn ?
Lilja og Sóley mæta í ferðina
Thelma og Sunna ætla að mæta í Vogana. Hvenær á að sækja þær á Sunnudeginum?
Hæ vera hér:)hvenar á að sækja okkur á sunnudaginn?en það er tvö pláss í bílnum að við getum sótt einhvern:Dok kveðja Vera og Íris (mamma)
hæ þetta er lejla ég kem með í vogaferðina ég fæ far hjá blerinu en sjáumst
hæ elma kemst ekki í vogana því hún er hja pabba sínum kv. Elma og Iða mamma hennar Elmu
hæ hæ Gleymdum alveg að melda okkur en Dagrún kemur með,,,ég kem svo með pizzurnar en heyri í ykkur með það á eftir
kv Þórunn
Skrifa ummæli