mánudagur, maí 11, 2009

Lakkrís og aftur lakkrís : )

Sælir foreldrar

Því miður fáum við ekki meiri lakkrís ! Bryndís , Katla og Elma ath. að hann Bogdan sem sér um lakkrísinn hjá Góu sagði að hann gæti ekki afgreitt ykkar magn en að þið gætuð farið til þeirra í afgangasöluna og fengið eh þar ! Ég get ekki farið í afgangasöluna og keypt þetta allt en þið gætuð farið og fengið 10 poka , 3 poka osfrv. Vonandi er þetta í lagi.
Annað líka að nú er ekki lengur 1 kg í poka heldur eru þeir að minnka í 800 en samt á 500 kr.

Svo að það fari ekki á milli mála að þá munum við stofna reikn. fyrir þær stúlkur sem ekki eiga reikninga hjá Landsbankanum. Þangað fer svo t.d kökubasarpeningurinn en ÞIÐ leggið svo sjálf ágóðan af lakkríssölunni inná þessa reikn.

P.s Það hafa verið góð viðbrögð við lakkrís áminningunni og nánast allt farið : )

Kv. Kristín

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ekkert mál ég fer bara í Góu og næ í það sem upp á vantar :) Má ég spyrja hver var ágóðinn af kökusölunni ?

Kveðja, Rósa (mamma hennar Kötlu).

Nafnlaus sagði...

hvernig nálgast maður reikningsnúmerin til að leggja inná?
kv
Þórir (pabbi Yrsu Rósar)
thorirst@nobex.is