sunnudagur, júní 28, 2009

Krókurinn !! Takk fyrir helgina ....

Kæru Haukaskvísur og fjölskyldur !
Takk fyrir frábæra helgi á Króknum, stelpur þið stóðuð ykkur rosalega vel og voruð til fyrirmyndar :) Addi og Ingimar, foreldrastjórn, Jói, Kalli, aðrir liðsstjórar og foreldrar takk fyrir allt - þið stóðuð ykkur vel eins og stelpurnar !!!
Svo er bara að fara að gíra sig upp í næstu mót sem eru Hnátumót KSÍ (6. júlí Kópavogur) og Símamótið (16.-19. júlí Kópavogur) ... þær sem eiga eftir að skrá sig, verða að gera það í síðasta lagi núna í vikunni !!!!!
Frí á æfingu á morgun, mánudag.... æfing á þriðjudag kl. 11:45.

kveðja
Ragga

Eitt sem mig langar að nefna - stelpurnar áttu að taka með sér nammi fyrir 200,- + gos til að hafa á laugardeginum....... til þess að allar væru með eins og það var EKKI í boði að kaupa sér meira nammi !!!! Höfum þetta bak við eyrað næst.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Thelma kemur úr sumarbúðum föstudaginn 16.júlí og væri mjög til í að taka þátt í símamótinu á lau og sun ef það er í boði. Hún verður erlendis á meðan Hnátumótið er.

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir frábært mót Ragga - þú stóðst þig sjálf einsog hetja einsog allir sem að þessu komu :)

Frábær helgi

mbk
Jón Ágúst
betur þekktur sem Áslaugarmörtupabbi

Nafnlaus sagði...

Lilja og Sóley mæta á hnátumótið, fann ekki skráningarpóstinn :)

kv
Steini

Nafnlaus sagði...

Auðvitað er það í boði fyrir Thelmu... skrái hana á Símamótið !
kveðja
Ragga

Nafnlaus sagði...

Ég skellti inn nokkrum myndum af mótinu hér

http://propaganda.is/haukar/

mbk
Jón Ágúst

Nafnlaus sagði...

hæ
Thelma ætlar að fórna sumarbúðunum og mæta á ALLT Símamótið ..